Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.09.1993, Qupperneq 16

Faxi - 01.09.1993, Qupperneq 16
með eilítið meiri trjágróðri — ég er viss um að það kemur. Grindvíkingar hafa byggt myndarlega á seinni árum og virðast halda sínum húsum vel við. Eins og áður sagði er íþróttasvæðið mjög gott og þar er einnig tjaldsvæði sem er mjög mikið notað. Geysi miklir möguleikar eru til frekari upp- byggingar umhverfis allt hafnarsvæðið og með frekari dýpkun innsiglingarinnar í framtíðinni, þá mun Grindavík halda áfrarn að vaxa sem einn af öflugustu útgerðar- bæjum landsins. 18 holur og nýir búningsklefar Jón skilaði mér nú aftur til bæjarskrifstofunnar og þar hitti ég þá Jón Gunnar Stefánsson bæjarstjóra og Halldór Ingvason félagsmálastjóra. Fékk ég Halldór til að úttala sig um sameiningar- málin sem eru nú í brennidepli og birtist það viðtal á öðrum stað í blaðinu. En jafnframt fékk ég hjá honum fregnir af hinum ágæta golfvelli þeirra Grindvíkinga, en Halldór er einmitt formaður golf- klúbbsins. A golfvellinum við Húsatóftir eru nú níu holur og er hann með betri golfvöllum landsins. Lengi vel voru ekki uppi neinar áætlanir um að stækka hann í 18 holur, en eftir því sem Halldór sagði, þá kom í Ijós við nánari athugun, að þarna er nægilegt og raunar ágætt land undir tleiri holur. Og þó ekki sé í gangi nein sérstök áætlun um það, þá gæti það allt eins gerst á næstu árum að völlurinn yrði l8holur. Mér þótti þetta góðar fréttir, sérstaklega ef áfrani verða nokkrar holur á neðra svæðinu meðfram sjónum. í stuttu spjalli við Jón Gunnar kom fram, að verið væri að gera samkomulag við knattspyrnudeild UMFG um að deildin byggði nýtt búningsklefahús við knattspyrnuvöllinn. Myndi síðan bærinn kaupa húsið þegar verkinu væri lokið. Er þetta nokkuð nýstárleg og athygliverð leið, því deildin á vissa möguleika á að koma húsinu upp á ódýran hátt með hagkvæmum samningum, sjálfboðavinnu og sérstökum fjáröflunarleiðum. Þá væri körfubolta- deildin að innrétta fyrir sig félagsaðstöðu í Festi. Það er því greinilegt, að bæjar- stjórnin er tilbúin að styðja við bakið á íþróttafólki bæjarins. daga. Við skulum vona að það hafi gengið eftir hjá Jóni. Aðstaða fiskmarkaðarins í húsinu er mjög góð. Þar er gott pláss fyrir þann fisk sem taka þarf inn á gólf og vel fer um þá sem koma til að bjóða í fisk. Eins og kunnugt er, þá hefur Fiskmarkaður Suðurnesja haft mikið frumkvæði hvað varðar tölvuvæðingu þessarar starfsemi og því hafa þeir sem bjóða í fiskinn nýjar og ferskar upplýsingar í höndunum og geta boðið þarna í fisk víða að á landi og sjó. Virðist þaö magn sem nú fer um markaðinn vera heldur rneira en í fyua, en verð vera svipuð. Ekki er ólíklegt að í IVamtíðinni muni mest allur fiskur sem upp úr sjó kemur verða seldur á fiskmörkuðunum. Að lokum sýndi Jón mér íbúðabyggðina þvera og endilanga. Aðspurður kvað hann eftirspurn eftir lóðum vera þetta 5-10 á ári. Lögð er áhersla á að fylla upp í göt hér og þar í byggðinni, en ein ný gata, Fornavör, hefði þó verið lögð í sumar og þar er þegar hafin bygging á fyrsta húsinu. Það virðist ekki vera mikill áhugi á byggingu stærri sambýlishúsa og því væri verið að breyla skipulagi þar sem fyrirhugað væri að byggja raðhús í stað blokkar. Gönguleiðin í Voga endurvakin En það er einnig annað átaksverkefni í gangi í Grindavík. Skammt frá íþróttavellinum var hópur fólks að vinna við að leggja göngustíg og hlaða vörður við upphaf hinnar fornu gönguleiðar milli Grindavíkur og Voga. Er sá staður beint upp af íþróttasvæðinu á móts við tjaldsvæðið. Þarna krossast fornar gönguleiðir, þar sem önnur fer í Voga - Skógfellavegur - og hin liggur í Njarð- víkurfitjar - Skipsstígur. Það er mjög áhugavert fyrir alla að fara þessar leiðir fótgangandi (5-6 klst. hvor leið) því margt fallegt og spennandi ber fyrir augu manna. Hin sveitarfélögin munu einnig byggja upp sína upphafspunkta og í samvinnu við Ferðamálasamtök Suöumesja verða þessar leiðir betur kortlagðar rneð merktum kennileitum og fróðleiksmolum. 1 Grindavík var verið að leggja myndarlegan göngustíg til að beina fólki inn á þessa leið en jafnframt verður út frá honum lagður stígur út að Dvalarheimilinu Víðihlíð. Með því fá íbúar hússins ágæta gönguleið að miðbænum þar sem öll helstu þjónustufyrirtækin eru til staðar. Við upphafsstað gönguleiðarinnar var búið að endurhlaða myndarlega vörðu, en annars munu flestar þær vörður sem vörðuðu leiðina vera til staðar enn í dag. Jón sagði frá því, að ekki væru önnur stórverkefni í gangi en sundlaugin, en því meiri áhersla væri lögð á það sem kalla mætti umhverlismál í bænum. Búið væri að leggja slitlag á allar götur og væri nú unnið við það að helluleggja gangstéttar. Væri það stefna bæjarins að helluleggja gangstéttirnar frekar en að steypa þær. Helur mikið magn af hellum verið keypt af átaksverkefni sem efnt var til í sumar til að skapa atvinnulausu fólki vinnu. Gafst þetta víðast vel og var þá oftast unnið við störf tengd umhverfismálum. Tryggvi Hansen var fenginn til að leiða 10-15 manna hóp sem vann áðurnefnt verk. Hellumar voru fengnar í hrauninu uustan við byggðina og hugmyndirnar þróuðust eftir því sem verkið vannst. Er óhætt að segja að það sé bæði frumlegt og eftirtektarvert. Léttsteypu Suðumesja og ætti m.a. að ljúka hellulagningu á stóm svæði við íþróttahúsið og nágrenni þess. I sumar hafa um 50 unglingar verið í bæjarvinnunni við ýmis störf. Hafnarsvæðið og Fiskmarkaður Suðumesja Næst lá leið okkar Jóns niður að höfninni þar sem mátti sjá merki um nokkra athafnasemi. Verið var að vinna við hlið stóra hússins sem netaverkstæðið Möskvi byggði fyrir nokkrum ámm og er nú í eigu bæjarins. Er verið að taka húsið í gegn að utan og hreinsa það og síðan verður það málað. Þá stóðu yfir dýpkunarfram- kvæmdir við Eyjabakkabryggjuna, en þar á að setja niður um 180 metra langt stálþil. Stendur til að breikka bryggjuna um 10 inetra. GrindvikingíU' em ekki á flæðiskeri staddir hvað varðar athafnasvæði við höfnina og þar mun því í framtíðinni halda áfram að byggjast upp góð aðstaða fyrir sjávarútveginn. Við Seljabót 2 stendur myndarlegt hús sem Fiskmarkaður Suðurnesja og Hafnarskrifstofumar eru nú í. Þetta hús var byggt á síðasta ári og við það er nú og fullkomin hafnarvigt. Var nokkuð athyglisvert að sjá, hvar vigtarmönnunum hafði verið komið fyrir (sjá meðf. mynd). Eitt er víst að þeir hafa óvenjugott útsýni yfir hluta hafnarinnar og innsiglinguna. Að vísu kvartaði vigtannaðurinn yfir því að það væri ólíft þarna inni vegna sólskins, en Jón lofaði því að nýjar og fullkomnar sólgardínur yrðu komnar upp eftir nokkra Grindavík er orðinn glæsilegur bær Það fer ekki á milli mála, að hafi Grindvíkingar sett sér það markmið að taka til hendinni í bænum svo um mutiaði, þá hefur þeim tekist að framfylgja því markmiði. Yfirbragð bæjarins er í dag virkilega fallegt og þar eru fáir lausir endar. Víkurbrautin er að fá á sig góðan og samfelldan heildarsvip sem þó mætti bæta 4 I 144 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.