Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.09.1993, Qupperneq 21

Faxi - 01.09.1993, Qupperneq 21
Minning Sigurður N. Brynjólfsson Fæddur 20. febrúar 1912 - Dáinn 15. júní 1993 Sigurður N. Brynjólfsson var fæddur 20.02 1912 í Syðri-Vatnahjáleigu í Austur- Landeyjum í Rangárvallasýslu, sonur hjónanna Margrétar Guðmundsdóttur og Brynjólfs Jónssonar. Tveggja ára fór Sigurður í fóstur til Guðlaugs Sigurðssonar og Ingveldar Guðmundsdóttur í Lækjar- hvamnii í sömu sveit. Þar ólst Sigurður upp ásamt Ágústi syni þeirra hjóna og ef æskuár Sigurðar bárust í tal milli okkar minntist Sigurður þeirra hjóna með mikilli hlýju og Ágústar minntist hann ávalt sem bróðurs síns. Kynni okkar Sigurðar hófust í Vest- mannaeyjum, ég þá tvítugur en hann þremur árum eldri. Með okkur þróaðist vinátta sem átti eftir að endast til æviloka Sigurðar, að vísu skildu leiðir í nokkur ár en þá stundaði Sigurður sjómennsku og daglaunavinnu í Reykjavík og síðan lögreglustörf á Sauð- árkróki, en þannig atvikaðist að við fluttum báðir til Keflavíkur á sama tíma. Sigurður ólst upp við venjuleg sveitastörf og lauk lögbundnu skyldunámi eins og það var á þeim tíma, auk þess var hann einn vetur í Iþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Þólt skólagangan væri stutt aflaði hann sér eigi að síður ágætrar þekkingar og var vel að sér um marga hluti. Hann stundaði daglaunavinnu og sjómennsku þar til hann réðist lögregluþjónn á Sauðárkrók á heimstyrjaldarárunum síðari, en flutti til Keflavíkur 1943 og var þar lögregluþjónn um skeið. Eftir að Sigurður lét af störfum í lög- reglunni stundaði hann oftast almenna verkamannavinnu. Síðustu árin var hann húsvörður við íþróttahús barnaskólans í Keflavík. Hann var einn af stofnendum Alþýðubandalags Keflavíkur og formaður þess um fjölda ára. Sigurður tók virkan þátt í pólitísku starfi. Þá var hann virkur félagi í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur. Einnig var hann um árabiI í stjórn Kaupfélags Suðurnesja. Hann var flugmælksur og sópaði af honum í ræðustól. Þá tók Sigurður virkan þátt í íþrótta- og ungmennafélgsstarfi, hann var formaður Héraðsambands Skagafjarðar þegar hann var á Sauðárkróki og hann var einnig um skeið formaður íþróttabandalags Suður- nesja. Á þeim árum sat hann Sæði þing U.M.F.Í og Í.S.Í. Sigurður var íþróttamaður í fremstu röð og bar þar glímuna hæst. Hann hafði frábært keppnisskap og keppnishörku og var sigursæll í keppnum en glfmdi oft með gætni. Hann var varnarmaður ágætur og var í alla staði hinn öruggasti og drengilegasti glímumaður. Hann álti langan glímuferil að baki og hafði þreytt kappglímur um 24 ára skeið. Sigurður keppti á sínum heimaslóðum á árlegum íþróttamótum U.M.F. Dagsbrúnar í Austur-Landeyjum og U.M.F. Þórsmerkur í Fljótshlíð. Sigraði hann þar í glímu á þeim þremur síðustu mótum sem hann tók þátt í. Hantt vann Ármannsskjöldinn 1940. Sigurður var áhugamaður um glímuna og framgang hennar og stundaði glímukennslu með góðum árangri á eftirtöldum stöðum: í Austur- og Vestur-Landeyjum, á Sauðár- króki tvö námskeið, við Bændaskólann á Hólum, á Árskógsströnd og í Keflavík. Árið 1957 fór flokkur undir stjórn Sigurðar á heimsmót æskunnar í Moskvu. Glímu- mennirnir voru sjö, allir úr Reykjavík. Flokkurinn var meirihluta júlímánaðar í Moskvu og sýndi þar glímu við góðan orðstír. Árið 1950 liélt Héraðsambandið Skarphéðinn bændaglímu í tilefni af fertugsafmæli sínu og glfmdi Sigurður þar þá þrjátíu og átta ára að aldri. Aðalstarf Sigurðar var á þessum ámm sjómennska og vom æftngar hans mjög stopular og jafnvel liðu svo ár að hann æfði ekki neitt. Á Sauðárkróki hafði Sigurður forgöngu um að haldin vom þar héraðsmót í íþróttum og keppti liann þar í kringlukasti og kúlu- varpi og setti héraðsmet í báðum grein- unum. í Keflavík tók Sigurður þátt í íþrótta- mótum einkum í sundi og átti hann Suð- umesjamet í bringusundi og baksundi. Síðustu ár æfi sinnar tók hann þátt í fjölmörgum púttmótum á Suðumesjum og vann til fjölda verðlauna. Sigurður átti við vanheilsu að búa síðustu árin, en eigi að síður má segja að hann haft stundað púttið og sundið til hinstu stundar. Sigurður kvæntist Pálínu Ragnhildi Rögnvaldsdóttur 24. maí 1941. Hún var fædd 18. maí 1918. dáin 10.07 1992. Þau bjuggu fyrst á Sauðárkróki eti er þau fluttu til Keflavíkur bjuggu þau fyrst að Tjarn- argötu 18, en frá og með ársbyrjun 1951 bjuggu þau í eigin liúsi að Garðavegi 8. Þau eignuðust sjö börn og eru fimm þeirra á líli, en þau em: Þráinn f.l2.júní 1942. Dáinn II. maí 1970. Stúlka f. 1944. dó sama dag.Dóra Guðrún fædd 23. ágúst 1945. Sambýlismaður: Sigurður Þorsteinn Ólafsson. Hafdís fædd 17. desember 1947. Sam- býlismaður Björgvin Bergsson. Brynjólfur f. 5. ágúst 1949. Sam- býliskona: Guðlaug Guðmundsdóttir Fyrri maki: Erla Zakanasdóttir. Reynir f. 28.2 1951 Sambýliskona: Magný Jónsdóttir. Omar f. 29. 12. 1955. Sambýliskona Sól- rún Haraldsdóttir. Bamabömin em sextán að tölu. Með Sigurði er horfmn af sjónarsviðinu mikill félagshyggjumaður. Hér hefur verið leitast við draga upp mynd af lífshlaupi og hugðarefnum Sigurðar, en í stuttri grein sem þessari hlýtur margt að vera ósagt. Blessuð veri minning SigurðurN. Brynjólfssonar Gcstur Auðuasson GREIÐSLUÁSKORUN Gjaldheimta Suöurnesja skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á opinberum gjöldum, sem álögð voru 1990,1991,1992 og 1993 og féllu í gjalddaga fyrir 1. nóvember 1993 og eru til ínnheimtu hjá Gjaldheimtu Suðurnesja að greiða þau nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá birtingu greiðsluáskorunar þessarar. Gjöldin eru nánar tiltekið þessi: Tekjuskattur, sérstakur tekjuskattur, útsvar, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, útflutningsráðsgjald, slysatryggingagjald atvinnurekenda samkvæmt 36.gr. laga, nr. 67/1971 slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, lífeyristryggingagjald samkvæmt 20. gr. laga nr. 67/1971, atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, aðstöðugjald, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar. Jafnframt er skorað á gjaldendur að gera skil á vangreiddri staðgreiðslu opinberra gjalda en gjaldendur mega búast við því að atvinnurekstur þeirra verði stöðvaður af lögreglu án frekari fyrirvara. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum, álagi og kostnaði að liðnum 15 dögum frá birtingu greiðsluáskorunar þessarar. Njarövík, 4. nóvember 1993. Gjaldheimta Suöurnesja FAXI149

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.