Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1993, Blaðsíða 22

Faxi - 01.09.1993, Blaðsíða 22
Brot úr sögu sólar Fræðamaður lét einhverju sinni hafa eftir sér að ekki væri ætlandi að skrifa sæmilega ritgerð án þess að leita til orðabókar í a.m.k. tvígang. Ekki er því úr vegi að uppfylla lögmálið og huga lítillega að orðinu sól. Sólarheitið og sunna koma fyrir í flestum þjóðtungum vestrænum. Reyndar er það ekki orðið sól sem ég hef mestan áhuga á heldur orðið sólarsaga og hvernig það er útskýrt í íslensku orðsifjabókinni, þar segir að sólarsaga merki „viðburðarrík, Iítt trúleg saga“. Þá vitum við hvað í vændum er ef öll sólarsagan er sögð. Ég ætla að leyfa mér einn útúrdúr hér, en í áðurnefndri orðabók er bent á að tilefni nafngiftarinnar sólarsaga sé ekki fullljóst, sbr. sónarsaga. Orðið són er nafnið á keri því sem varðveitti skáldamjöðinn, þannig sé til orðið sónarsaga sem merki „furðuleg, lítt trúleg saga“. Útúrdúmum er hér lokið. Engum dylst að sólin sem alla með kossi vekur er ásamt stjörnum og tungli í nokkurri fjarlægð frá jörðu. Ekki virðist því áhlaupaverk að ráðast til atlögu við hana og rannsaka. Það væri sannkölluð sónarsaga ef einhverjum tækist að ráfa til sólar og setja í hana mæli og lesa af hitann. Ekki einu sinni barón Karl Friedrick Hieronymus von Munchausen fór slíkar ferðir, hann lét sér nægja Venus. Okkur ætti því ekki að bregða í brún að sólin er örðugt viðfangsefni og snúið til skilnings, og eins og oft vill verða um slík efni þá voru þau fóstruð í trúarbrögðum. Lofgjörð um sólina, reyndist óður til lífsins og þar við sat uns mönnum opnuðust nýir heimar með sjónaukum og rafknúnum mælitækjum. Lærdómurinn sem draga má af þessu er sá að það skiptir miklu máli í öllum fræðum og vísindum á hverjum tíma hvað unnt er að skoða og rannsaka, -eins og það heitir nú. Við gætum þá sagt að hvað verður vitað á hverjum tíma er háð því hvaða verkfæri - tæknileg og andleg - eru til staðar. T.d. skiptir máli hvenær sjónaukinn kom til sögunnar, eins skiptir máli hvaða stærðfræði var til á hverjum tíma, en þetta síðamefnda er öllum ekki jafn augljóst, en skiptir þegar öllu er á botninn hvolft ekki síður miklu. Úr nútímanum eru flestum kunnar tölvur og tölvustýrð raftæki, auðvitað var ekki unnt að smíða slíka gripi án rafmagns, en völundarhús tölvunnar er byggt upp á stærðfræði sem var til löngu á undan nokkurri hagnýtingu rafmagnsins, þannig eru tölvunnar bæði gömul andleg tækni og ný verkleg. Þegar Galileó Galilei beindi fyrstur manna sjónauka að himinhvolfinu - árið 1609-, höfðu menn haldið að tunglið væri slétt, stjömurnar sem sáust á himinhvolfinu væru ekki fleri en ber augun sjá, sólin væri Ágúst Ásgeirsson. slétt, ekki væri tungl um nokkra stjörnu nema jörðina og þannig má lengi telja. Allt þetta breyttist með tilkomu sjónaukans er Galilei smíðaði eftir forskrift frá Hollandi. Þetta er eins og að fá gleraugu þegar þeirra hefur lengi verið þörf, það er eins og manni opnist nýr heimur, heimur sem alltaf var þama en maður bara kom ekki auga á hann. I bókinni Heimsmynd á hverfanda hveli eftir Þorstein Vilhjálmsson, seinna bindi. segir prýðilega frá þeirri umbyltingu er störnuskoðun Galileis hafði í för með sér. Myndin af sjónauka Galileis er úr þein i bók tekin. Fyrir sólarritgerð skiptir miklu að Galilei taldi sig sjá sólbletti á sólu, þessir blettir virtust breytast frá einum tíma til annars og voru óreglulegir í lögun. Sólblettir eru áhugaverð fyrirbæn og hafa lengstum verið hin mesta ráðgáta. Síðar tíma sjónaukar leiddu í Ijós að sólin okkar er ekki einsdæmi um sólir heldur eru þær fjölmargar og nýjar og nýjar athuganir virðast leiða í Ijós enn lleiri sólir, svo nú skiptir fjöldi þeiira hundmðum milljóna. Sólin í okkar sólkerfi er gífurlega stór miðað við aðra hluti í sólkerfinu. Hún er fyrna þung, til að vega upp sambærilegan massa þyrfti 330 þúsund jarðir. En jörðin er samt miklu þyngri í sér. Ef við tækjum lítrafernu af mjólk og settum í hana meðaljarðai'efni þá vegur lítrinn um það bil 5.5 kg, ef lítrafernan innihéldi meðalsólai'efni þá væri hún 1.4 kg. Skýr- ing er sú að sólin samanstendur aðallega af léttustu frumefnunum vetni og helíum. Á meðan íjörðinni eru miklu þyngri frumefni. En sólin er líka miklu heitari en jörðin. Talið er að jörðin sé um 5000°C heit innst, það er álíka hiti og á yfirborði sólarinnar. Innsti kjari sólar er hins vegar talinn vera | 15.5 milljónir gráða. Nú andvarpar hugsanlega einhver og segir: ég get skilið að þegar ég fer á sjúkrahús og sjúkraliðinn stingur í mig mæli og les af 38°C þá sé hitinn u.þ.b. 38°C, en eins og þú sagðir áðan þá er bara ekki unnl að hverfa til sólar og stinga í hana mæli og hvernig getur þú verið viss. Við skulum reyna að svara, í fyrsta lagi gerum við smá tilraun, hvað gerist ef við slökkvum ekki á eldavélahellunni, þegar pottamir eru teknir af. Eldavélahellan hitnar og vel að merkja hún skiptir litum verður fyrst rauðleit, gul og loks blá (og þá er löngu kominn tími til að slökkva á hellunni, krakkar; ekki gera þessa tilraun einsömul). Eldsmiðirnir gömlu hömruðu járnið meðan heitt var, hversu heitt þekktu þeir á litnum og voru um það til mikil fræði á þeim tíma. Litur sólar segir okkur að yfirborðið er um 5(X)0°C. En Iritinn í kjarna sólar er furidinn á annan hátt. Við vitum að við þurfum raforku til að framkalla Ijós á ljósaperuna og orkuna þarf að framleiða eða framkalla á einhvern hátt. Sumstaðar er notuð kjamorka til þess. Sú kjarnorka er tilraun lil að virkja orkuna sem fólgin er í kjarnorkusprengingu. Þessu fylgir öll umræðan um hættuleg geislavirk efni eins og úran, plúton o.s.frv. Kjarnorkuverin ganga fyrir svokölluðum kjarnahvörfum, reyndar þeirri tegund kjarnahvarfa er einkennast af því að efni eru 150 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.