Faxi - 01.09.1993, Side 27
Knaffborðssfofð Suðurnesja
Nútímanninum bjóðast sífellt fleiri
taekifæri til ad finna sér tóm-
stundagaman við hæfi. Mörgum
þykir íþróttin ballskák, eda billiard,
mjög skemmtileg og eitt er víst að
íþróttin á miklum vinsældum að
fagna í sjónvarpi. I Evrópu eru
Qölmargir atvinnumenn í ballskák
og nú á næstunni munu þrír ungir
landar okkar reyna sig á þeim
vettvangi.
Nýlega hefur Valur Símonarson
tekið á Ieigu rekstur Knattborðsstol'u
Suðurnesja í Grófinni í Keflavík.
Valur hefur mörg undanfarin ár siglt
á erlendum farskipum um víða
veröld en hefur nú komið í land eins
og sagt er. Eins og algengt er með
sjómenn, þá takasl þeir á við ýmis
verkefni þegar í land er komið og er
Valur Símonarson
gaman að því að Valur skuli vera
farinn að reka þessa ágætu billiard-
stofu.
Það var Börkur Birgisson sem
stofnsetti stofuna og er hún með
þeim betri á landinu. Börkur hefur nú
snúið sér að öðrum verkefnum í bili.
Faxi fékk þær upplýsingar hjá Vali.
að hann liefði áhuga á að auka áhuga
almennings á þessari ágætu íþrótt.
Nú þegar eru margir frambærilegir
spilarar hér um slóðir, en það vantar
breiddina. Fyrir þá sem vilja byrja að
spila verður sérstakt afsláttarverð í
gildi og stofan mun útvega leið-
beinendur ef þess er óskað. Fyrir
nemendur Holtaskóla gildir sérstök
gjaldskrá á laugardögum milli
klukkan 12 og 16. A öðrum tímum l'á
nemendurnir 20% afslátt. Einnig
verður í gildi sérstakur fjölskyldu-
afsláttur.
A þessu má sjá að Valur vill gera
sitt til að laða fólk að stofunni.
Opnunartími ætti að henta flestum
því opið er daglega frá kl. 12 á
hádegi til 11:30 á kvöldin. Mörg mót
eru fyrirhuguð. Nú stendur yfir mót
FlugHótels og verða úrslit leikin
þann 13. og 14. nóvember. Hag-
kaupsmótið verður leikið 10. - 12.
desember með úrslitum þann 19. des.
Jólamót, svonefnl Raketturmót, hefst
annan í jólum og eftir áramót verða
mörg stórmót frá janúar og fram í
maí. Sérstakt öldungamót verður
haldið í mars og sjálft íslands-
meistaramótið í Snókcr verður haldið
á stofunni í apríllok. Fyrir stutlu fór
fram svokallað Fjölmiðlamót og
voru þátttakendur frá Suður-
nesjafréttum, Víkurfréttum, Faxa,
Bæjarbót og skólablöðum FS og
Holtaskóla. Fyrir einstaka tilviljun
sigraði Faxi í þessu ágæta móti.
Heimsmeistarinn, Steve Davis, heimsótti Knattborðstofu Suóurnesja um árió. Hér
bregöur liann á leik með Berki Birgissyni og Neal Fcwles.
ayr o(/
(yódffr matar
'S em /e/nar á
óoa/t
Sími 14777
SUÐURNESJABUAR
Bifreiðaskoðun íslands
hefur flutt starfssemi sína
í nýja skoðunarstöð, að
Njarðarbraut 7, Njarðvík.
Nýtt símanúmer
16260
Nýtt myndsendisnúmer: 16250
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
FAXI155