Straumar - 01.08.1928, Síða 16
t> T H A U M A U
12«
ingar fornaldarinnar lif og litu og iara á kreik, klæddir holdi
og hlóði, 1 lifandi rás viðburðanna. Auk þess er fjöldi manna
nefndur til sögunnar, sem ókunnugt er um annarsstaðar frá og
iioilai' sögur sagðar i sambandi við þá, sem iullyrt er að orpnar
hafi verið gleymsku.
þetta er nú gott og blessað munu menn segja, en ber þá
sagan nokkur sannindamerki á sér svo að hægt sé að álykta
að liún sé annað en heilaspuni og skáldskapur? Um það fer
vitanlega talsvert mikið eftir þvi, hverja skoðun menn liafa á
ósjálfráðri skrift. Ritarinn er í þessu falli að vísu smásöguhöf-
undur, en að nokkur svik geti verið höfð við, eða að ritið stafi
frá undirvitund miðilsins virðist af mörgum ástæðum alveg
útilokað. þeir, sem rannsakað hafa venjulegar starfsaðferðir
licnnar, segja liana rita að jafnaði 600—700 orð á nokkrum dög-
um með mörgum leiðréttingum. En þetta rit hefir hún skrifað
i liálftranci að viðstöddum vitnum, með þeim geysihraða, að
hún hefir ritað yfir 2000 orð á hálfum öðrum kl.t. Skrifar hún
þannig heilsteypta kafla af ritinu, sem síðan eru gefnir út eins
og þeir korna fyrst úr pennanum. Að öðru leyti er stúlkan sögð
allsendis ófróð um sögu frumkristninnur, guðfræði og heimspeki
yfirleitt, en frásögnin í Cleofasar-ritinu he.fir reynst í ýmsum
smáatriðum að bera vott um mjög nákvæmn þekkingu á sögu
postulatimans og koma heim og saman við það er síðustu rann-
sóknir hafa leitt í ljós. Auk þess kemur hún með hebresk nöfn
alveg rétt mynduð, að dómi fróðra manna, enda þótt hún kunni
ekkert i því máli og fjöldi staðalýsinga ritsins hafa reynst ná-
kvæmlega réttar í öllum atriðum. Svo að rit þetta er óneitan-
lega merkilegt, hvernig sem á sannsögulegt gildi þess er litið.
En fyrst og fremst er það skemtilegt aflestrar, skrifað með til-
þrifamiklum og blæfögrum stíl með köflum. Sagan snýst sem
fyr einkum um Pál, þenna beljaka andans, sem ekki styðst að-
eins við vísdómsorð, heldur sönnun anda og kraftar. Klæddur
hertýgjum ljóssins, herjar hann þar á Satan og alt hans lið í
öllum sínum jötunmóði. það er gnýr af sterkviðri andans um-
hverfis hann livar sem hann fer, og við hlið hans stendur göf-
ugmennið Barnabas og þoir Silas, Timoteus og Lúkas, hver
maðurinn öðrum ágætari.
Eg tríú eigi öðru en mörgum muni þykja bók þessi hugð-
næm aflestrar og bíða með óþreyju eftir framhaldinu. Vildi eg
einkum ráðleggja öllum prestum að lesa hana. því að hvemig
sem hún er til komin, þá mun hún á margan hátt geta vakið
menn til meiri á huga fyrir sögu frumkristninnar og aukið
skilning á henni. B. K.
Synodus. Hin árlega prcstastcfna var haldin að Hólum í
Hjaltadal, dagana 5.—8. júlí s. 1. að viðstöddum 29 klerkum.