Straumar - 01.08.1928, Qupperneq 17
íá T U A U M A H
127
pótti fundur sá með mikilli viðhöfn, með því að framin var
biskupsvigsla af biskupi vorum dr. Jóni Helgasyni í hinni fornu
Hóladómkirkju, svo sem skýrt er frá á öðrum stað hér í blaðinu.
Stofnuð var þar ný Prestafélagsdeild fyrir Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslur. Auk þess gerðu nokkrir prestar á Norður-
landi með sér bréfafélag. Ætti þetta livorttveggja að geta orðið
til að efla samlieldni og andlega samvinnu presta og er það vel
farið. Er þess hin brýnasta þörf, að prestarnir sé liver öðrum
til trúarstyrkingar og hvatningar hér í fásinninu, en á því hefir
oft viljað verða tilfinnanlegur misbrestur.
Annars gerðist íátt mikilla tíðinda. í handbókarmálinu gerð-
ist ekkert markvert, ekki cinu sinni kosinn maður i nefndina
í stað Haralds próf. Nielssonar. í barnaheimilisnefnd voru
kosnir til viðbótar: séra Ólafur Magnússon í Arnarbœli og séra
Hálfdán Helgason Mosfelli.
Út af skeyti sem prestastefnunni liarst frá stórstúkuþinginu
á Akureyri, þar sem stúkan biður prestana að predika bindindi
einhvern sunnudag i haust komanda, sendi prestastefnan stór-
stúkunni skeyti, þess efnis, að biðja drottinn að blessa þýðing-
armikið starf hennar. Hinu tóku prestarnir dauflegar, að pré-
dika bindindið.
þessi erindi voru flutt á prestastefnunni: Sig. P. Sívertsen:
Norðurlandakirkjurnar þrjár og lielztu einkenni þeirra. Gunnar
Arnason: Samband presta og safnaða. porsteinn Briem: Trúar-
þörf mannsins. Dr. Jón Helgason biskup: Kristileg prédikun,
i hverju hún er fólgin. Ólafur Ólafsson: Kristniboð í Kína.
Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur: „ICirkja vors guðs er gamalt
hús“.
Sigurður Einarsson, prestur í Flatey, hefir dvalið erlendis
nú um hríð, með styrk úr Sáttmálasjóði. Hefir hann farið víða
um Sviþjóð, Danmörku og Finnland og var á lcið til þýzka
lands, er hann ritaði oss síðast.
Kenslumálaráðuneyti Finna lét honum í té ókeypis far á
öllum járnbrautum Finnlands. Hefir hann heimsótt ýmsa kenn-
araskóla þar, og flutt fyrirlestra um skólamál. Er farið mjög
vinsamlegum orðum um þá í Uusi Suomi 19. júní síðastl. —
Séra Sigurður hefir bók í smíðum um skólamál, sem verða
mun lokið með haustinu.
Prestaköll. Til Húsavikurprestakalls var Knútur Arngríms-
son kosinn löglegri kosningu með 257 atkv. Jakob Jónsson féklc
204 og þormóður Sigurðsson 16. — pórarinn pórarinsson tók
aftur umsókn sína. — Knútur verður vígður þ. 19. ágúst.
þann 22. júlí var .Takol) Jónsson cand. theol. vígður aðstoð-
arprestur til föður síns, séra Jöns Finnssonar á Djúpavogi.