Útvarpstíðindi - 07.11.1938, Blaðsíða 8
56
ÚTVARPSTÍÐINDI
GnnnlaBgwr Briem verkfræðingur:
Stækkun útvarps-
stödvarinnar
títvarpsstöðin á Vatnsendahæð tók
til starfa 21. des. 1930. Afl hennar
var þá 16 kílówött í loftneti o;r öldu-
lengdin 1200 metrar. Aiþjóðaráð-
stefna í Prag 1929 hafði úthlutað
þeirri öldulengd til Islands. Útvarpið
heyrðist þá um allt. landið.
Truflanir frá erlendum
stöðvum.
I árslok 1932 byrjaði öflug (200
kw.) útvarpsstöð í Luxembourg að
útvarpa á hér um bil sömu öldulengd
og eyðilagði með því viðtöku íslenzka
útvarpsins í austurhluta landsins.
Þessi stöð var ekki reist handa hlust-
endum í Luxembourg, heldur í próða-
skyni til þess að útvarþa auglýsing-
um, sérstaklega fyrir brezka hlust-
endur, þar eð bi ezka útvarpið leyfði
ekki auglýsingaútvarp um sínar
stöðvar. LuxembourgSitöðin braut al-
þjóðasamþykktir um öldulengdir og
tók sér þá öldulengd, er bezt þótti,
og hélt fast við hana, þrátt fyrir
harðorð mótmæli annara landa.
Næsta, útvarpsráðstefna var hald-
in í Lucerne 1933 og var Islandi þá
úthlutað öldulengdin 1639 metrar,
sem var tekin til afnota af útvarps-
stöðinni hér í janúar 1934. Þá hurfu
truflanir frá Luxembourg og heyrð-'
isit íslenzka útvarpið aftur um allt
land. Þetta stóð þó ekki lengi. I marz-
mánuði sama ár breytti franska út-
varpsstöðin Radio-Paris. skyndilega
um öldulengd og fór að útvarpa á hér
um bil sömu öldulengd og útvarps-
stöðin hér, og trufJaði þá viðtöku
hennar í austur helmingi landsins
engu minna en Luxembourg áður.
Franska útvarpsstjórnin fékkst.
ekki til þess að breyta þessu og var
ástæðan fyrst og fremst sú, að öldu-
lengdin, ,sem Radio-Paris átti. að nota,
var upptekin af öðrum, sem höfðu
neitað að undirskrifa Lucernesam-
þykktina.
I samráði við alþjóðaeftirlitsstöð
útvarpsstöðva, sem hefir aðsetur sitt
í Brússel, reyndi. íslenzka útvarps,-
stöðin allar öldulengdir milii 1050 og
1900 metra, sem til mála gátu komið.
Notaði útvarpsstöðin þá í 2 vikur
1345 metra öldulengd með sæmileg-
um, árangri, en svo var úti friðurinn
þar, vegna öldulengdabrcytinga út-
varpsstöðvarinnar í Varsjá (120 kw).
Eftir langvarandi tilraunir reyndist
skárst að nota, 1442 metra öldulengd,
sem einnig er notuð af rússnesku út-
varpsstöðinni í Minsk. Þó voru trufl-
anirnar þaðan, svo miklar er dimma
tók, að austurhluti landsins mátti þá
heita að miklu leyti sviptur afnotum
íslenzka útvarpsins og ýmsir aðrir
landshlutar fengu ekki notið þess til
fullsi sökum meiri eða minni truflana.
Veðurfréttir og neyðartilkynningar
náðu þá ekki til Austfjarða eða skipa
austan lands. ,