Útvarpstíðindi - 07.11.1938, Blaðsíða 9
ÍJTV ARPSTIÐINDI
57
Titvarpastöðin hér hefir notað öldu-
lepgdina 1442 metra frá því vorið
1934 og til þessa dags, þrátt fyrir
Þessar truflanir frá Minsk. Hinsveg-
ar óx einnig hættan á truflunum úr
annari átt. Þegar útvarpsstöðvarnar
á langbvlgjusviðinu sín hvoru megin
við útvarpsstöðina hér höfðu aukið
afl sitt, Daventry úr 25 kw. upp i
150 kw. og Motala úr 30 kw. upp í
150 kw. eða meir, þá fór að bera á
því, að þær heyrðust, víða í ódýrari
viðtækjum, þótt þau væru stillt á
öldulengd íslenzku útvarpsstöðvar-
innar. Síðan hefir útlitið enn versnað
vegna stórfelldrar aukningar á afli
utvarpsstöðva í flesitum löndum.
Endurbætur útvarpsnotanna.
Ríkisútvarpið og hlustendur þess
og þjóðin öll gat ekki unað við þetta
ástand til lengdar, og voru þá athug-
aða,r ýmsar leiðir til úrlausnar svo
sem stækkun útvarpsstöðvarinnar,
endurvarpsstöðvar í öðrum, landshlut-
um, flutningur útvarpsins til endur-
varpsstöðvanna eftir símalínum, eða
með stuttbylgjum o. fl. Aó öllu at-
huguðu virtist heppilegasta lausnjn
vera sú„ að auka afl útvarpest"ðvai'-
innar upp í 100 kw. og ieisa jafn-
íramt 1 kw. endurvarpsstöð á Aust-
f jörðum, og síðar ef til viii víðar smá-
endui'varpsstöðvar. Hvorki stækkun
útvarpsstöðvarinnar ein eða endur-
varpsstöð ein var talin nægileg', held-
ur varð hvort.tveggja, að fylgjast að,
svo sem reynslan og hefir sýnt. Ým-
islegt annað varð til þess að styðja
þessa lausn og flýta framkvæmd
liennar, meðal annars væntanleg end-
urskoðun á úthlutun öldulengda.
Fregnir höfðu borizt hingað um það
frá erlendum áhrifamönnum á þessu
sviði, að litlar líkur væru til, að hin-
ar dýrmætu langbylgjur yrðu úthlut-
aðar til smástöðva á með',n 100—150
kw stöðvar vantaði þær, og myndi að-
staða Islands, í þessu efni vera clí'kt
betri, ef 100 kw stöð væri hér fyrir.
Auknirg á afli útvarpsstöðvarinn-
ar átti því ekki aðeins að verða tii
þes,s, að unnt yrði að flytja útvarps-
efnið til endurvarpsstöðvar á Aust-
fjörðum á viðunandi hátt, og bæta
útvarpsviðtökuna í cðrum landshlut-
um með því að yfirgnæfa tru'lanir
frá erlendum útvarpsstöðvum, heldur
einnig að skapa Xslandi ólíkt betri að-
stöðu en áður á, alþjóðaráðstefnum
um öldulengdir. Jafnframt hlaut afl-
aukningin að hafa, í för með sér, að
minna bæri á útvarpstruflunum frá
rafvélum cg öðrum raforkuvirkjum,
að betur heyrðist, til útvarpsins í
gömlum smáviðtækjum, að hægt yrði
að nota háspennurafhlöður og lampa
lengur en ella eða afhlöður með lægri
spennu en áður, að menn. kæmust af
með minni viðtæki og ódýrari loftnet
o. s, frv.
I fjárlögum 1935 veitti Alþingi rík-
isstjórninni heimild til þess að láta
auka og endurbæta senditæki út-
varpsins' svo, aðþau fullnægðu þörfum,
landsmanna. Þessi heimild var svo
endurtekin í fjárlögum, síðari ára.
Fyrri hluta árs 1937 ákvað ríkis-
stjórnin að leysa májið þannig, að afl
útvarpsstöðvarinnar skyldi aukið upp
í 100 kv. og 1 kv. endurvarpsstöð
skyldi reist á Austfjörðum, og er nú
lokið þeim framkvæmdum. Frh.