Útvarpstíðindi - 03.04.1939, Side 11
barnabók félagsins, sem allir kanai-
ast við, og fær mér til að blaða í. Ég
kemst að raun um, við að fletta í
gegnum þessar bækur, að það er
Steingrímur Arason, sem hefur lagt
stærstan skerf til þeirra.
— Eruð þér ánægðir með árangur-
inn af starfsemi félagsins þessi 15 ár?
— Það verður ekki annað sagt en
að árangurinn sé mikill. Þá bjartsýn-
ustu okkar hafðí ekki einu sinni
dreymt um að félagið mundi á svo
skömmum tíma hljóta svo óskipt
fylgi fólksins. Það er því ekkert að
þakka okkur heldur fókinu.
—: Var það ekki »Sumargjöf«, sem
fyrst. helgaði sumardaginn fyrsta
börnunum?
— Jú, þá fer fram okkar árlega
fjársöfnun til dagheimilanna, en ann-
ars er dagurinn um leiö orðinn al-
menn,ur hátíðlisdagur barnanna
sjálfra og finnst mér það vel til f.all-
ið. Þar sem ég ólst upp á Norður-
landi var sumardagurinn fyrsti eins
mikill hátíðisdagur fyrir okkur börn-
in og sjálf jólin.
— Iívernig teljið þér að starfsemi
dagheimilanna hafi heppnazt?
—- Hún hefur heppnazt ágætlega.
JxS ao við höfum að mestu orðið að
nota ólært fólk til að veita þeim for-
stöðu, en. nú eigum við von á nýrri
forstöðukonu, dóttur Geirs Zoega
vegamálastjóra, en hún hefur tekið
próf i barnauppeldi og fengið æfingu
í þeim efnum í Danmörku. Þau eru
nú tvö dagheimilin, Grænaborg og
Vesturborg. Þetta ár höfum við i
fyrsta sinni starfrækt dagheimili að
vetrinum.
— Annarsi er það mest um vert,
bætir Steingrímur við, að fólkið hef-
Börn i sólbaidi við Grœnuborg.
Börii að leikjum hjá Grœnuborg.
ur skilið hugsjónir félagsins. Það veit,
að hver einasti eyrir, sem safnast til
þessarar starfsemi fer til barnanna
sjálfra. .
— Hver verða dagskráratriði
útvarpskvölds ykkar?
— Sigurgeir Sigurðsson biskup, sr.
Jakob Kristinsson, fræðslumálastjóri
og Isak Jónsson kennari hafa lofað
að flytja ræður, en á milli erindanna
syngur dreng'jakór undir stjórn Jóns
Isleifssonar kennara.
Að lokum röbbum við fram og' aft-
ur um uppeldisástand unglinga og
barna hér í Reykjavík og lætur Stein-
grímur þá greinilega í ljósi, að enn sé
ekki nægilega mikið gert fyrir börn-
387