Útvarpstíðindi - 03.04.1939, Blaðsíða 20

Útvarpstíðindi - 03.04.1939, Blaðsíða 20
 Frá liðnum kvöldum. Það liggur viö, að maöur undrist nú orðir?, ef gáfuleg stólræða heyrist í útvarp frá hinum svo nefndu Reykja- víkurprestum, en, það hlýt ég að við- urkenna, að ræða séra Sigurjóns Árnasonar, er hann flutti sunnudag- inn 26. þ. m., ,bar þess ljósan vott, að höfundurinn reyndi af ákveðn- um vilja að tala sannleika. Hann reyndi af ábyrgri alvörugefni aðskýra mál sitt svo, að áheyrendur væru ein- hverju nær eftir að hafa hlýtt á hann. En það verð ég að segja eins og ég tel sannast, að mér hefur oft fund- izt skorta nokkuð á það, að útvarps- ræður presta hér i Reykjavík bæru þess vott, að ræðumennirnir finndu til þeirrar siðferðilegu ábyrgöar, sem því fylgir að hafa e. t. v. margar þús- undir manna að áheyrendurn. Á síðustu kvöldvöku flutti Þorsteinn Jósepsson mjög áheyrilegt og skemmtilegt erindi um gemsur í Alpafjöllum. Hafi hann þökk fyrir það. Á eftir honum talaði svo Skúli Þórðarson magister um, Hvassafells- máj. Skúli er vel máli farinn og er- indið var fremur vel flutt, en ég tei mjög vafasamt., hversu gildisríkt efn- ið er eða smekklegt. — Því verður að vísu ekki neitað, að mörgum mun íinnast efnið »interessant«, en ætli þaö séu ekki svipaðar kenndir, sem vekja þann áhuga og þær, sem kynda undir venjulegum slúðursögum sam- tíðar okkar. — Hér er um að ræoa ógeðfellt og ógeðslegt siðferðisbrot, sem mér finnst smekkleysa að vera að rifja upp, og ekki fæ ég séð, hvaða 396 gildi það hefur fyrir nútíma útvarps- hlustendur, að heyra færðar fram e. t. v. auknar líkur fyrir sekt þessara framlionu mannvera, sem almenning- ur þessa Jands mun hingað til frem- ur hafa haft samúð með. K. F. ★ Björn Bjarnason hélt allgott erindi urn þýzka skáldið Heine 12. marz. Var það vel til fallið, að skýra mönn- um frá höfuðatriðunum í afiferli þessa frábæra snillings. En í sam- bandi við þetta erindi dettur manni eit.t í hug: Væri ekki tilvalið að hafa við og við vel undirbúin minningar- kvöld erlendra stór,skálda. Nokkurra íslenzkra skálda hefur verið minnzt á þann hátt, og þótt hið vinsælasta útvarpsefni. Yrði á slíkum kvöldum að liaJda greinargott erindi urn æfi og ritstörf skáidanna, Jesa upp úr verkum þeirra og syngja lög við kvæði eftir þau. — ★ Efni kvöldvökunnar 15. marz var heldur fábreytt, en mátti heita gott það sem það var. Hinn góðkunni og duglegi fræðimaður, Einar Öl. Sveins- son, flutti fróðlegt erindi um huldu- fólk og trúna á þaö. Einari telíu; oft það, sem sumum öðrum fræðimönn- um -’eitist erfitt, að gera viðfarigsefn' sín hugleikin og aðlaðandi. Hann er líka orðinn vinsæll fyrirlesari. ★ Annars, verð ég að segja það um útva.rpið undanfarna daga, að þaó; hefur haft heldur fátt hýtt að flytja. Þar ríkir enn sem fyrr hálfgerður drungi, og andi deyfðarinnar svífur

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.