Útvarpstíðindi - 03.04.1939, Side 14
ÚTVARPSTÍÐINDI;
Sp.: Þurfa útsölumenn viðtækja-
verzlunarinnar að greiða rafhlöður og
varahluti fyrr en það hefur selzt hjá
þeim?
Svar: Nei. Þess þurfa þeir ekki,
því þeir hafa þessa vöru aðeins í um-
boðssölu.
Sp.: Hver getur verið orsök þess,
að allir lampar í rafhlöðu-viðtæki
eyðileggjast í einu?
Svar: Orsökin er sennilega sú, að
of há spenna hefur borizt inn á gló-
vír lampanna, t. d. ef 4 volta raf-
geymir hefur verið tengdur við við-
tæki fyrir 2 volta rafgeymi, eða ef
háspennurafhlaðan hefur verið tengd
við bá enda í viðtækinu, sem áttu að
tengjast við rafgeyminn (2 eða 4
volt), eða ef af ógáti eða vegna bil-
unar, hefur komizt, samband milli há-
spennunnar og glóvírsins. Bezta ráð-
ið til þess að komast hjá þessu er að
gæta þess vandlega að tengja rétta
enda við rétta póla rafgeyma og raf-
hlaðna, missa aldrei neinn hlut úr
málmi niður í viðtækið, og yfir höfuð
fikta sem minnst við tækið að innan.
Sp.: Skemmast ekki rafgeymar, ef
þeir eru hlaðnir öfugt, þannig að plús-
pól verður að nota sem mínuspól og
öfugt?
Svar: Jú, slíkur rafgeymir er stór-
skemmdur.
Sp.: 1 hvaða landi eru flestir út-
varpsnotendur, miöað við fólksfjölda?
Svar: Bandaríkin eru hæst, þar
koma tæpir 5 íbúar á hvert viðtæki.
f Evrópu er Danmörk hæst, með 5
390
r
Ymsir braghæftir.
Sléttubönd.
Meður góðum andans auð
útvarp þjóðir kætir.
Hleður fróðleik sérhvern sauð,
sálar fóður-bætir.
Hagkveðlingaháttur.
Málfars góðiur, menntaður,
manna og fljóða dýrlingur,
vinsæll, fróður Vilhjálmur
valinn þjóðar snillingur.
Mælskur séra Sigurður,
sagður vera hlutdrægur.
Skaði er því skarpvitur,
skyggna gerir hlustendur.
Brag'íienda hringhend.
Feiknalaginn, fróðleik Jón
í fólkið treðiur,
um þjóðarhagi, vísur, veður,
veginn, daginn, allt sem skeður.
Hringhenda.
Bezta hrós og hylli vann
Hjörvar drósa og sveina,
allir kjósa að heyra hann
hugsun Ijósa greina.
Nýhenda (liringhend).
Þorsteinn, mæta hylli hlaut,
helzt þ ó kætir börnin grínid.
Saltar ætíð útvarpsgraut
og í hann lætur vítamínið.
íbúa á hvert viðtæki. Á Islandi koma
nærri 8 íbúar á hvert viðtæki.
Sp.: Hvaða efni er venjulega flutt
í útvarpinu til útlanda?
Svar: Erindi um eitthvert, efni, sem
lýsir íslandi, hinni íslenzku þjóð og
menningu hennar, ennfremur hljóm-
plötur og fréttir frá fslandi. Útvarp-
ið fer ýmist fram á ensku, þýzku eða
dönsku.