Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Side 9

Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Side 9
Pe ríukóngurinn S ö nn frásögn frá J a p a n Þegar fyrsti regndropinn féll úr skýjunum niður í hið stóra, bláa haf, tóku hinar breiðu öldur hann í arma sína og vögguðu honum aftur og fram, eins og litlu barni. — En hvað ég er lítill í saman- burði við þetta endalausa haf — sagði regndropinn. En hafið svar- aði: Mér geðjast að lítillæti þínu. Ég vil gera þig eilífan og gefa þér litskrúð regndropans. Þú skalt vei'ða að ljósdropa, hinum hreinasta með- al gimsteina jarðarinnar. Þú skalt drottna yfir heiminum, og þú skalt einnig drottna yfir konunni. Þannig varð perlan til. (Persnesk helgisögn um uppruna perlunnar). Milcimoto, perlulcóngurinn. ÚTVARPSTÍÐINDI Það var Japaninn Kokichi Miki- moto, sem fyrstur tók upp á því, að ,,rækta“ perlur. Honum heppnaðist með hjálp vísindanna að framleiða þannig gallalausar, hnöttóttar perl- ur. Mannkynið má því þakka Miki- moto það, að sá skartgripur, sem um þúsundir ára hefur verið talinn öllum gimsteinum dýrmætari, er nú á 20. öldinni orðinn iðnaðarvara. Mikimoto er fæddur í perluveiða- bænum Toba. Þar er ævisaga hans beinlínis orðin að helgisögn. Börnin læra hana í skólum bæjarins. Amm- an segir hana barnabörnum sínum og ýkir frásögnina furðulega. En þótt öllum ýkjum sé sleppt, er saga hans ágætt dæmi um jap- anska framsækni. Árið 1852 var Nippon (Japan) dularfullt, fjarlægt og óþekkt ævin- týraland fyrir Evrópumönnum. Að vísu höfðu hollenzkir kaupmenn leyfi til að verzla í Nagasaki, en þeir fengu ekki að koma inn í land- ið. Alþýðan, sem bjó inni í landinu, þekkti ekkert til umheimsins, þar til árið 1852, að amerísk herskip kröfðust aðgangs að höfnunum og fulls verzlunarfrelsis. Árum saman ráðguðust herfor- ingjarnir um, að hve miklu leyti þeir ættu að létta af margra alda ein- angrun og leyfa framandi mönnum inngöngu í landið, eða hvort reka skyldi þá af höndum sér. 41

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.