Útvarpstíðindi - 04.11.1940, Blaðsíða 10
Um þetta leyti, þegar Japan var
að rumska, fæddist í Toba hjá fá-
tækri fjölskyldu hinn verðandi
perlukóngur.
Kokichi litli gat aðeins um næt-
ur helgað sig lestrarnámi, því að á
daginn varð hann að hjálpa föður
sínum við að sjá fjölskyldunni, 11
mönnum, farbqrða. Fjórtán ára
gamall var hann orðinn grænmetis-
sali. Þegar hann var 18 ára, sá hann
í fyrsta skipti útlendinga, og það
varð örlagaríkur atburður fyrir
hann.
Það var sumarnótt og tunglskin.
Mikimoto litli vaknar og lítur út á
Kyrrahafið og sér úti við sjóndeild-
arhring erlent skip. Það var fyrsta
enska herskipið, sem kom til Toba.
Þá dettur honum nokkuð gott í hug.
Hann klæðist í 'skyndi, vekur
alla íbúa bæjarins, sem áttu hænsni,
kaupir af þeim nýorpin egg, og áð-
ur en sól er risin, er hann kominn
með þau á leið til hins ókunna her-
skips.
Mikimoto getur ekki talað ensku,
og skipshöfnin kann ekki orð í jap-
önsku, en með skringilegu látbragði
og' meðfæddri kátínu heillar hann
skipshöfnina. Eftir langa sjóferð
vilja náttúrlega allir kaupa ný egg.
Honum er meira að segja borgað
hærra verð en hann setur upp. Og
áður en bæjarbúar vakna, hefur
hann selt öll sín egg.
Skipstjórinn vill ekki sleppa hon-
um. Hann vill fá hann til að vera á
skipinu. En Mikimoto finnur þunga
peninganna í vasa sínum. Svona
mikla peninga hefur hann aldrei
haft á sér á ævi sinni — og hann
er Japani! Hvernig gæti hann
yfirgefið ættland sitt á þessu ör-
lagaríka augnabliki. Nei, hann vill
ekki verða eftir á herskipinu. —
Draumar hans höfðu allir snúist um
Tokio, hina stóru borg. Nú hefur
hann peninga, og þangað verður
hann að fara. Og draumur hans
verður að veruleika.
í Yokohama, næstu borg við To-
kio, blómgast perlumóður-verzlun-
in jafnt og þétt. Kínverskir kaup-
menn byrgja sig þar upp. Og þar
er einnig verzlað með ósviknar
perlur.
Mikimoto veit, að í Toba eru átt-
hagar perluskeljarinnar. Þar við
ströndina er krökkt af perlumæðr-
um og af og til finnast þar perlur.
Hann telur kínversku kaupmenn-
ina á að koma til Toba, því að þar
geti þeir gert ódýrari innkaup. Eft-
ir þrjá mánuði vonast hann eftir
þeim, og þá ætlar hann að hafa
miklar birgðir til taks. Nú þarf snör
handtök. Beztu burðarmennirnir
hraða sér með hann í burðarstól til
Toba. Þar kallar hann bæjarbúa
saman. Allir eiga af safna skeljum
og kafa eftir perlum. Hann yfir-
igefur grænmetisverzlun sína og
kaupir perlumæður og perlur fyrir
hvern skilding, sem hann á.
Kínverjarnir komu á tilsettum
tíma og íbúar Toba selja ágætlega.
Mikimoto er hetja dagsins og er
kosinn í bæjarstjórnina 33 ára gam-
all.
Hinn ungi verzlunarfrömuður og
bæjarfulltrúi fær nú áhuga fyrir
stjórnmálum. Útlendingarnir höfðu
fært honum heill. Hann styður þess-
vegna flokk, sem er velviljaður út-
lendingum, berst fyrir þingræði og
fyllir flokk hinna frjálslyndu.
Hann hugleiðir oft, hvernig á því
muni standa, að perluveiðarnar
virðast undir tilviljun einni komn-
ar. Stundum finnast engar perlur í
skeljunum mánuðum saman, en
42
ÚTVARPSTÍÐINDI