Útvarpstíðindi - 02.12.1940, Blaðsíða 2
Dómurinn.
Rossini, fulltrúi hins ljóðræna, en
ekki að sama skapi djúptæka ít-
alska óperustíls, var spurður, hvern-
ig honum hefði líkað „Tannháuser“
Wagners, sem þá var nýbúið að
leika í fyrsta sinn.
Hann svaraði: „Til þess að geta
dæmt þessa óperu, verða menn að
hlusta á hana oftar en einu sinni;
ég ætla mér þó ekki að gera það!“
Slys. ' 1 j ,
Richard Strauss, sem er
ekki síður tónstjóri en tónskáld er
að æfa „Alpasymfóníuna“ með
hljómsveit sinni. Þegar komið er að
erfiðum parti í kaflanum „þrumu-
veður og stormur“, vill svo til, að
fiðluboginn rennur úr hendi forleik-
arans og dettur á gólfið.
„Bíðið!“, kallar Strauss. „Við
verðum að taka „þrumuveðrið“
aftur: forleikarinn missti regnhlíf-
ina!“ R. A.
Drykkjuróni sneri sér að einum Reykja-
víkurprestanna, sem var á gangi í Aust-
urstræti að kvöldlagi: „Ef ég man rétt“,
sagði hann, „stendur það í biblíunni, að
það, sem þér viljið að aðrir gjöri yður,
skuluð þér þeim gjöra“. — Prestur kvað
þetta rétt vera. „Viljið þér þá ekki gjöra
svo vel að gefa mér nokkra aura, prestur
ÚTVARPSTÍÐINDI
konn út vlkuleKa. a8 vetrinum, 2t tölubl.
16 blaCsiöur hvert. 3. lrcangur kostar
kr. 7.60 til áskrifsnda og greiölst fyrir-
fram. í lausasölu kostar heftlt) 15 aura.
Rltstjöri og ábyreöarmaCur:
KRISTJÁN , FRIÐRIKSSON
Bergstaöastr. 48. - Sími 4937
Afgr. I Austurstr. 12. - Slmi 6046
Útsefandii H/f. Hlustandinsu
ísafoldarprentsmiöja h/f.
góður?“ — hélt drykkjurúturinn áfram. —
„Samkvæmt orðinu ber mér ekki að gefa
yður peninga", mælti prestur, „því að ég hef
ekki minnstu löngun til að þér gefið mér
aura“.
Einu sinni var ungur maður, sem nýkom-
inn var heim frá útlöndum, með gott próf.
Hélt hann því, að allar atúlkur væru
,skotnar“ í sér. Skömmu eftir að hann
kom, var hann á dansleik og gaf sig þar á
tal við miðaldra mann, sem hann hafði
hitt eitt sinn á íslendingafélagsfundi í
Kaupmannahöfn. Allt í einu tekur ungi
maðurinn eftir því, að á að gizka fertug
kona, sem situr hinum megin í salnum, er
að biosa og kinka kolli, þangað sem þeir
standa.
„Skyldi þessi kerlingarskrukka þarna
vera að reyna að „kóketera" við mig?“
sagði ungi maðurinn.
„Ég veit ekki“, svaraði hinn. „En það er
velkomið, að ég spyrji hana að því fyrir
yður; því að þetta er konan mín“.
*
„Þetta kvenfólk, þetta kvenfólk! Því er
aldrei treystandi“.
„Nú, hvað áttu vi8?“
„Ég setti hjúskaparauglýsingu í Morgun-
blaðið, og hver heuldurðu að hafi gefið sig
fram? Kærastan mín“.
Ný barnabók! Smekkleg jólagjöf!
Prinsessan í hörpunni
EFTIR KRISTJÁN FRIÐRIKSSON
er nýkomin í bókauerzlanir uiðsvegar um land. Aðal söguþráður þessarar
bókar er tekinn úr fornsögunum, enda er bókin rituð í þvi skyni að glœða
_______ áhuga barna og ungling fyrir þeim.
98
ÚTVARPSTÍÐINDI