Útvarpstíðindi - 23.12.1940, Side 14
Tryggve Andersen:
Við arineldinn.
Niðurl.
Allt heldra fólkið í sveitinni komst
í uppnám. — Á þeim tíma höfðu
stéttahleypidómamir mótazt á nokk-
uð sérstakan hátt þar um slóðir. Það
var fullur fjandskapur milli embætt-
ismannanna og bændanna, eins konar
pólitískt hatur. Að vísu kom það ekki
í veg fyrir, að allmargir bændasynir
gerðust liðsforingjar, en það voru þá
helzt ungir menn frá stórbýlunum, og
þeir fengu strax inngöngu í hóp stétt-
arbræðra sinna. En það var talið
sjálfsagt, að þeir veldu sér konur úr
sinni stétt. Og það gerðu þeir líka
venjulega, en margur mun hafa iðr-
azt þess árum saman, að hann, stöðu
sinnar vegna, hafði bundizt konu, sem
stundum var eldri en hann og leit
niður á hann og dró enga dul á, að
hún hefði tekið niður fyrir sig, er
hún giftist honum, þótt hún hefði lát-
ið tilleiðast fremur en að verða pipar-
mey alla ævi. Dætur heldri manna
í afskekktum byggðalögum voru illa
settar með biðla og höfðu sjaldan úr
miklu að velja.
Oftast var auðvelt fyrir karlmenn-
ina að komast yfir þessar mannfélags-
legu hömlur, sem stéttahrokinn hafði
reist. En það var erfiðara fyrir kon-
urnar. Brytu þær sjálfar af sér viðj-
arnar, voru þær útskúfaðar af sínum
nánustu, gleymdar, horfnar. — Það
gat farið iila fyrir liðsforingja eða
embættismanni, sem gerðist svo
djarfur að ganga að eiga rétta og
slétta bóndadóttur. Á hann var litið
ádeila og kímni. Eftirtektarverð er
einnig hin örugga bygging leikrita
hans, því að hann leggur alúð mikla
við hvert smáatriði, án þess að missa
sjónar á heildarsvip leiksins, og verð-
ur mynd sú, er hann gefur af per-
sónum og viðburðum mjög lifandi og
sannfærandi.
Hann hefur losað sig við hið alvar-
lega form, sem var á leikritum alda-
mótatímabilsins, án þess að hafa far-
ið út í neinar öfgar. S. M. ræðir al-
varleg vandamál, án þess að láta al-
vöruna bera listarform leiksins of-
urliði.
Eins og fyr er greint, er það Leik-
félag Reykjavíkur, sem stendur að
útsendingu á þessu leikriti. Mun það
verða flutt að öllu leyti eins og á
venjulegum leiksýningun? og leik-
endur allir hinir sömu.
Leikskráin er þessi:
Maurice Tabret ........ Indriði Waage.
Dr. Ilarvester .... Brynjólfur Jóhanness.
Frú Tabret ......... Arndís Björnsdóttir.
Wáyland, hjúkrunarkona .... þóra Borg.
Alice .............. Guðnin Guðmundsd.
Licanda, majór ........ Valur Gíslason.
Stella Tabret............. Alda Mðller.
Colin Tabret...........Gestur Pálsson.
Leikurinn fer fram í Gotley House,
bústað frú Tabret, nálægt London.
„Loginn helgi“ verður fyrsti út-
varpsleikurinn á árinu 1941. Við
skulum vona, að það viti á gott um
leikstarfsemi útvarpsins á árinu.
158
ÚTVARPSTÍÐINDl