Útvarpstíðindi - 27.01.1941, Qupperneq 6
Kona af kynþætti Dínara
(Bayern).
Kona af Alpakynþætti
(Bayern).
semdum og miðaðir við svo ólík sjón-
armið, að ekki verður annað sagt en
að vísindalegan grundvöll vanti með
öllu til þess að kveða upp nokkurn
dóm um yfirburði eins eða annars
kynþáttar. Hins vegar virðast hæfi-
leikar kynþáttanna vera með mörgu
móti, og hefur einn þeirra þá gjarn-
an kosti, sem annan skortir. Einn
virðist vera beztur til að gera þetta,
Kona af baltneskum kynþætti
(sænsk).
annar til að gera hitt. Og ef hvort
tveggja er nytsamt, hvor er þá betri?
Hvor er betri, bóndinn eða fiski-
maðurinn? Hvor er betri, ljóðskáldið
eða listamaðurinn? Allt eftir því
hvernig á er litið og hvers þarf með
í það og það skiptið.
— Er nokkuð sérstakt, sem þér
vilduð segja frekar í sambandi við
þessi mál?
— Ja, ég vildi kannske vekja at-
hygli lesendanna á því, að þótt hrein-
ræktun eins ákveðins kynþáttar sé
talið sáluhjálparatriði í sumum lönd-
um, þá hafa verið og eru margir
merkir fræðimenn, sem halda því
hiklaust fram, að heppileg blöndun
kynþátta sé til menningarauka.
Þannig segja sumir, að menning
endurfæðingartímabilsins á Italíu á
14. og 15. öld, hafi mikið verið því
að þakka, að þar í landi hafi blandazt
saman norrænir menn og menn af
Miðjarðarhafskynþætti. Og aðrir
halda því fram, að framfarir Þjóð-
verja í tækni og iðnaði og fleiru séu
að töluverðu leyti sprottnar af því,
að norræni kynþátturinn hafi bland-
azt þar við Alpakynþáttinn á hæfi-
legan hátt. Ég get ekkert sagt um,
hvort þetta er rétt, en drep aðeins á
það til þess að sýna, hversu mjög
skoðanir þeirra manna, er rannsak-
að hafa þessi efni, eru andstæðar.
Lítt eða ekki rökstuddum fullyrðing-
um um þessa hluti er því skynsam-
legast að taka men nokkurri varúð.
222
ÚTVAEPSTÍÐINDI