Útvarpstíðindi - 27.01.1941, Blaðsíða 8

Útvarpstíðindi - 27.01.1941, Blaðsíða 8
Halldór Kiljan Laxness les KVÆÐI LJÓSVÍKINGSINS sunnd. 2. febr. — Hvað kemur til, að þér farið að lesa ljóð í útvarp? spyr ég H. K. Laxness. — Það kemur eiginlega ekki til af neinu góðu. Það er út af orðum, sem voru látin falla í útvarpinu um dag- inn um sögupersónu mína, Ó. K. Ljósvíking. 1 útvarpinu sagði svo: „Hér á landi er ekki svo fátt manna, sem eru á borð við Ólaf Kárason ... en þræla út bókum í bundnu eða ó- bundnu máli, sem fáir eða engir líta við. Þeir gera jafnskjótt kröfu til að teljast rithöfundar, en mættu heita Ljósvíkingar til aðgreiningar og auð- kennis á hópnum. Svo upphefja þeir sína raust og segja, að þetta sé hel- vízt þjóðfélag, sem svelti skáld sín“. — Ég hef álitið, að í þessum orðum fælist mistúlkun á þessari söguper- sónu. Ég vil ekki láta gera minn Ljósvíking að dæmi um leirskáld. í mínum augum er hann það ekki. Það væri því ranglátt að nefna alla þá menn, sem gefa út vondar bækur, eftir honum, og enn fjarstæðara væri, að líkja honum við þá, sem upphefja sína raust og segja, að þetta sé helvízt þjóðfélag, því að það gerði Ól. Kárason aldrei. — Eru það þá kvæðin eftir Ljós- víkinginn, sem þér ætlið að lesa? — Já, ég býst við að lesa öll kvæð- in úr bókunum um Ljósvíkinginn. Ég get ekki fundið, að þessi kvæði séu sígilt dæmi upp á leirskáldskap — og það ætla ég að sýna, — en annars dettur mér ekki í hug að halda því fram, að hér sé um nokkurn sérstak- an fyrirmyndar skáldskap að ræða. Um kvæðin er annars það að segja, ,að sum eru í þjóðkvæðastíl, önnur í stíl gamalla barnagæla og 'svo eru þrjár sonnettur. Næst síðasta kvæð- ið, „Þinn spegil hef ég fundið fagra mynd“, er gert í frönskum stíl. Ég veit ekki til þess, að áður hafi verið ort undir þeim bragarhætti á Islandi, en sá bragarháttur var mikið notað- ur af hinu franska stórskáldi, Baude- laire. Frúin: „Viljið þér eklíi spila meira fyr- ir okkur, prófessor?“ Prófessorinn í tónlist: „það cr orðið svo framorðið. Ég er hræddur um, að það trufli nábúana". Frúin: „það gerir ekkert til, þeir eiga það skilið, — þeir eitruðu fyrir köttinn okkar um daginn". 224 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.