Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Qupperneq 4
364
ÚTV /VRPSTÍÐINDI
Formaður útvarpsráðs þarf nauð-
synlega að taka daglega þátt í starf-
rækslu dagskrár. Hann þarf að hafa
fastan viðtalstíma í skrifstofu ráðs-
ins daglega, en svo er ekki nema með
höppum og glöppum. I raun og veru
má segja, að útvarpið sé hálfgerð
hornreka hjá okkur. Það starfar fyr-
ir nær allan landslýð. Starfstími þess
er meirihluti dags alla daga ársins.
Þó er svo að því búið um mannafla,
að engu tali tekur. í skrifstofu út-
varpsráðs eru að eins þrír menn, sem
starfa að dagskránni, og það er langt
frá því að vera nóg. Til samanburð-
ar má geta þess, að við dagblöðin í
Reykjavík starfa 7—10 menn — og
óhætt er að segja, að þeir hafa allir
meira en nóg að gera. Þó verður að
vanda miklu meira til flutnings efn-
is í útvarp en greinar dagblaðanna,
og oftast miklu erfiðara að fylla það
rúm, sem þarf að fylla í útvarpinu,
heldur en í dagblöðunum. Starf út-
varpsmanna byggist ekki aðeins á
dugnaði þeirra, heldur ekki síður á
því, að þeir hafi ríkt hugmyndaafl,
en það vill oft kafna í þrældómi hjá
mönnum, sem hafa allt of mikið að
gera. Það er því lífsnauðsyn fyrir
útvarpið, að breytt sé til um starfs-
háttu hjá útvarpsráði, og við verð-
um að játa, að ekki hafa aðrar til-
lögur komið fram skynsamlegri en
tillögur Snorra Sigfússonar. — Þá
verður enn að minnast á greiðslur til
þeirra, sem starfa fyrir útvarpið.
Það er ekki aðeins, að laun fastra
starfsmanna séu mjög bágborin, og
nægir í því sambandi að geta þess,
að grunnlaun annars fulltrúa út-
varpsráðs eru 500 krónur á mánuði,
en sá maður þarf að hafa töluverða
Framhald á bls. 384.
000000000000<0<00000<00
RÍKiSÚTVARPiÐ
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunar-
verk er að ná til allra þegna landsins
með hverskonar fræðslu og skemmtun.
sem þvj er unnt að veita
AÐAT.SKRIFSTOFA ÚTVARPSINS
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborg-
anir, samningagerðir o. s. frv. — Út-
varpsstióri er venjulega til viðtals kl.
2—4 síðd. Sími skrifstofunnar er 4993.
Sími útvarpsstjóra er 4990.
INNHEIMTU AFNOTAGJAEDA
annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998
ÚTVARPSRÁ ÐIÐ
(Dagskrástiórnin) hefur yfirst;órn hinn-
ar ménningarlegu starfsemi o<t velur
útvarpsefni. Skrifstofan er opin til við-
tals os afgreiðslu frá kl. 2—4 síðd.
Sími 4991.
FRÚTTASTOFAN
annast um fréttasöfnun innanlands og
frá útlöndum. — Fréttaritarar eru í
hveriu héraði og kaupstað landsins. Simi
fréttastofu 4994. Sími fréttastjóra 4845.
AUGLÝSINGAR
Útvarpið flvtur auglýsingar og tillcvnn-
ingar til landsmanna með skiótum og
áhrifamiklum hætti. Þeir, sem reynt
hafa, telia útvarpsauglýsingar áhrifa-
mestar allra auglýsinga. Auglýsinga-
sími 1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS
hefur daglega umsjón með útvarpsstöð-
inni, magnarasal og viðgeröastofu. Sími
verkfræðings 4992.
VIÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskonar viðgerðir og
hreytingar viðtækja, veitir leiðbeining-
ar fræðslu um not og viðgerðir við-
tækja. Sími viðgerðarstofunnar 4995.
TAKMARKIÐ er:
Útvarpið inn á hvert heimili! Allir
landsmenn þurfa að eiga kost á því, að
hlusta á æðaslög þjóðiífsins; hjartaslög
heimsins. IUkisútvarpiS.
<>0000000000000000000