Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Blaðsíða 11
ÚTVARPSTIÐINDI
»
Islenzkar myndir
í sænsku útvarpsblaði
hafa Útvarpstíðindi leyft sér
að taka þær upp. Þær sýna
Sigurð skáld á Arnarvatni
snöggklæddann við útvarps-
bifreiðina. Undir myndinni
af honum stendur: „Sigurð-
ur Jónsson er bóndi, skáld
og sögumaður. Hann kom
beint frá störfum sínum og
las fyrir okkur kafla úr
Njálssögu". — Þá sést prest-
ur þeirra Mývetninga við
simaviðgerð uppi í símastaur.
Undir þeirri mynd stendur í blað-
inu: „Magnús Lárusson er prestur,
stöðvarstjóri og símaviðgerðarmað-
ur og unir við öll störfin". •— Undir
myndinni frá hvernum stendur:
„Heitt vatn til upphitunar fær mað-
ur beint úr iðrum jarðarinnar. Þarna
tekur „mikrofónninn“ drunurnar úr
hver skammt frá Geysi“.
ÚTVARPSMENNIRNIR frá Norð-
urlöndum, sem voru hér í sumar,
hafa nú haft mörg erindi og frá-
sagnir héðan í útvarpi landa sinna.
Mest mun hafa komið í sænska út-
varpinu, en minnst í því danska,
enda var útvarpað miklu héðan í
Danmörku í fyrra sumar. Útvarps-
blöð í þessum löndum hafa og birt
greinar og ferðasögur útvarpsmann-
anna, og hafa margar myndir fylgt
greinnnum. Fyrir nokkru var flutt
í sænska útvarpið frásögn af heim-
sókn útvarpsmannanna í Mývatns-
sveit. Þar las Sigurður skáld á Arn-
arvatni upp úr Njálu, en skáldkonan
Arnfríður Sigurgeirsdóttir á Skútu-
stöðum rabbaði við útvarpsmennina.
— Um líkt leyti birtust myndir í
sænska útvarpsritinu ásamt gréiri og