Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Blaðsíða 15

Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Blaðsíða 15
ÚTVARPSTÍÐINDI 375 FÉLAGSSAMTÖK OG ÚTVARPIÐ. Svbj. Riörnsson, Reykjavík, skrifar á þessa leið: „Útvarpið hefur verið rneð lélegasta móti í sumar, og minnist ég ekki, að það hafi verið eiris fátæklegt frá því ég fór að hlusta á það svo að segja að staðaldri. Ég veit ekki — og get ekki gert mér grein fyrir — af hverju þetta stafar, því að ekki getur beinlínis verið um að kenna fjárskorti. Þó' að kostnaður hafi að sjálfsögðu aukizt mjög hjá útvarpinu eins og öðrum á síðustu árum, þá hafa tekjurnar og vaxið gífur- lega. Afnotagiöldin hafa margfaldazt og auglýsingatekjurnar að öllum líkindum að sama skapi. Ég vil mótmæla því, að útvarpið lækki kröfur sinar um gott dag- skrárefni jafnframt því sem afnotagjöld- in eru hækkuð. Útvarpið verður að vera síbatnandi, það er það minnsta, sem við hlustendur og borgendur til útvarpsins getum gert kröfu til. En þessu er ekki að heilsa, eins og ég lief sagt, — allt, eða langflest hefur versnað. Leikritin versna, útvarpssögurnar verða æ lélegri, við og við koma sæmileg erindi, en megin þeirra er svo lélegt, að varla tekur að hlusta á þau. Ég vil þó sérstaklega taka undan hin afburða góðu erindi, sem Sig- urbjörn Einarsson dósent hefur verið að flytja undanfarið um trúarbrögðin. Hér er Um mjög mikinn fróðleik að ræða og þekkingarauka, í raun og veru er þetta ekki aðeins kennsla í trúarbragðasögu, heldur og mannkynssögu, og alltaf þykir hlustendum vænt um slík erindi. Pá hafa yfirlitserindin um útlönd tekið allmikl- um breytingum til bóta, sérstaklega líka mér vel hin algerlega hlutlausu erindi Þórarins ritstjóra Þórarinssonar. Hann varðist ætla að geta orðið góður útvarps- maður, sem gaman verði að hlusta á. Um músíkina dæmi ég ekki. Hef elcki svo mikið vit á henni, að ég telji mig geta slett mér fram í deilurnar um hana, enda eru þær svo sem nægar fyrir. -— En yfir höfuð að tala er ég óánægður við út- varpið. .— En sérstaklega vil ég minnast á eitt atriði. Ég er andvígur því, að ein- stökum félögum í landinu sé afhent út- varpið til eignar og umráða, heil kvöld. Þetta hefur verið gert, og mér finn^.t, að það færist heldur í vöxt. Allir eiga þess- ir félagsskapir líkast til gott eitt skilið, og það er sjálfsagt, að útvarpið gefi þeim tækifæri til að koma fram fyrir hlust- endur, en fyrr má nú vera en að þeim séu bókstaflega gefin heil kvöld, eins og komið liefur fyrir tvisvar sinnum núna alveg nýlega. Það er lika alger misslciln- ingur ef þessir félagsskapir halda,. að það hafi einhver meiri áhrif til fram- dráttar áhugamálum þeirra, að þeir séu með heila kvölddagskrá í stað þess að fá eitt erindi eða ávarp til lilustenda. — Ég vil láta útvarpið stemma stigu við ásóknum allra þessara félagsskapa. Það er alveg nóg komið af ágengni þeirra“. UNDIR SMASJANNI. Sveinn Stefánsson, Asi,skrifar: „Fyrir nokkru talaði Gunnar Stefánsson um er- lenda ferðamenn, sem hingað hafa kom- ið í sumar, og kynni sín af þeim. Mér þótti gaman að þessu erindi, en það kall- aði hann „Undir smásjánni“. Ég hef haft nokkur kynni af erlendum ferðamönn- um undanfarin tvö sumur, og ég fullyrði, að sú mynd, sem Gunnar Stefánsson gaf af hinum mismunandi viðhorfum þeirra var í höfuðatriðum rétt. Það hefur líka viljað við brenna, að okkur fslendingum þætti nokkuð gaman að heyra það, sem erlendir menn segðu um okkar og I^ndið okkar, og því hygg ég, að grindi Gunn- ars hafi fallið í góðan jarðveg. Mættum við ekki fá að heyra meira frá Gunnari. Hann semur vel og flytur ákjósanlega, jafnvel betur en flestir aðrir, sem koma fram í útvarpinu og eru þar að stað- aldri“. (Erindi G. St. birtist í þessu hefti).

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.