Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Qupperneq 6
2
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
nefnd St. R. því að vísa til fyrri afstöðu
sinnar í verulegum reglugjörðaratrið-
um, er samþykktin hefir, og til athuga-
semda sinna bréflega og á sameiginleg-
um fundum um sjálft launakerfið og
flokkun launa. Afstaða launanefndar
St. R. til reglugjörðaratriða samþykkt-
arinnar kemur fram í breytingartillög-
um, sem nefndin gerði við frumvarp
launanefndar bæjarstjórnar að ,,Sam-
þykkt um laun og starfskjör fastra
starfsmanna Rvíkurbæjar“ (Launa-
reglugjörð), og eru þær ásamt greinar-
gerð fyrir þeim birtar í áframhaldi af
áliti nefndarinnar, en vitanlega ein-
göngu þær breytingartillögur, sem
snerta atriði í fyrirliggjandi samþykkt.
Þegar nú bæjarstjórn tekur frum-
varp launanefndar sinnar til meðferðar,
er þess að vænta, að hún líti einnig til
vilja Starfsmannafélags bæjarins, eins
og hann birtist í áliti launanefndar St.
R. og breytingartillögum, en feli síðan
launanefnd sinni að finna nýjan og hag-
kvæman grundvöll til samvinnu við
launanefnd St. R. við samning að end-
anlegri launareglugjörð fyrir starfs-
menn bæjarins. Eins og bæjarrekstrin-
um er nú komið, getur það ekki verið
vilji bæjarstjórnar, að skipa þessum
málum með einhliða aðgjörðum eða
valdboði einu saman. Hafi nokkuð skort
á heppilega samvinnu milli launanefnd-
anna fram til þessa, þar sem fyrirliggj-
andi frumvarp að launasamþykkt er al-
gjörlega á ábyrgð launanefndar bæjar-
stjórnar, og þar er ekki fylgt breyt-
ingartillögum launanefndar St. R. í
verulegum atriðum, þá má enn bæta
úr þessu með samstarfi beggja launa-
nefnda að samningi launareglugjörðar-
innar. Á þetta samstarf verður að
leggja alla áherzlu, svo að launamálið
leysist endanlega og viðunanlega fyrir
báða aðila.
Frumvarp að samþykkt
um laun starfsmanna Reykjavíkur-
kaupstaðar.
I. kafh.
Launakerfið.
1. gr.
Allir fastir starfsmenn bæjarins,
hvort sem þeir eru skipaðir af bæjar-
stjórn eða á annan hátt, skulu fá skip-
unarbréf hjá borgarstjóra. Fastir
starfsmenn teljast þeir starfsmenn, sem
gegna störfum tilgreindum í 5. gr., eða
störfum, er síðar kunna að verða felld
þar undir, og skipaðir eru í stöðurnar.
2. gr.
Föstum starfsmönnum er skipað í 15
launaflokka á þann hátt, sem 5. gr.
ákveður. Borgarstjóri skal vera utan
launaflokka, og ákveðast laun hans af
bæjarstjórn. Starfsmenn í 1. launaflokki
skulu fyrst um sinn ráðnir með sér-
samningi.
3. gr.
Laun fastra starfsmanna miðast við
útborgunareiningu þeirra (mánaðar-
laun). Launin greiðast fyrirfram mán-
aðarlega með V12 árslaunanna. Á með-
an starfsmenn eru settir í stöðu fá þeir
greidda % af byrjunarlaunum í þeim
launaflokki, er þeir heyra undir. Nú
flyzt starfsmaður úr stöðu í lægra
launaflokki í stöðu í hærra launaflokki
og skal hann þá taka laun á því launa-
stigi í hinum nýja launaflokki, sem jafn-
hátt er eða næst fyrir ofan þá launa-
upphæð, er hann hafði náð í hinum
lægra launaflokki.