Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Blaðsíða 18

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.03.1939, Blaðsíða 18
14 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR CTGEFANDI: Starfsmannafélag Reykjavíkurbæjar. RITSTJÓRN: Lárus Sigurbjörnsson, aðstoðarm. bæjargjaldkera. Jóhann G. Möller, skrifstofustjóri Rafmv. Rvíkur. Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfulltrúi. Auglýsingar annast Augiýsingaskrifstofa E.K., Austurstræti 12. Sími 4292. Starfsmannablað Reykjavíkur kemur út 6 sinnum á ári og kostar utan Starfsmannafél. Reykjavíkurbæjar 5 kr. árg. (6 tölublöð). 1 lausasölu 1 kr. blaðið. STEINDÓRSPRENT H.F. _______________________________ utan um hinar vinsælu gamanvísur um starfsmenn og málefni, sem að undan- förnu hafa verið fluttar á árshátíðum félagsins. Eða hvað segir leikstjórinn Lárus — kannske hann sé allur í liðn- um leikurum? Rafmagnið hefir þó alla daga Pettí, að Hjörleifi ógleymdum, og Sundhöllin hefir kvenfólkið. — Þetta ætti skemmtinefndin að athuga fyrir næstu árshátíð, — kannske „kæmust þá færri að en vildu“, eins og stendur í auglýsingunum hjá Reykjavíkurannál. Aðalfundur félagsins var settur í Varðarhúsinu 6. febr. s.l. Var launa- málið tekið til meðferðar á undan aðal- fundarstörfum, svo að ekki vanzt tími til að ljúka þeim, en fundi frestað, unz séð yrði hvernig launamálinu reiddi af. Skýrði launanefnd St. R. frá nýju og óvæntu viðhorfi í launamálinu, þar sem nefndinni hafði borizt bréf frá launa- nefnd bæjarstjórnar þess efnis, að skil- yrði fyrir framgangi launamálsins væri afnám eftirlaunasjóðs bæjarins eða bein þátttaka starfsmannanna sjálfra með tillögum í sjóðinn. Sló miklum óhug á fundarmenn við þessi tíðindi, því að ekki varð séð, að þær kjarabætur, sem feng- ist með nýrri launasamþykkt væri sam- anberandi við eftirlaunaréttinn með til- lögum greiddum af bæjarsjóði. Sam- þykkti fundurinn gagnorð, en hógvær, mótmæli gegn því, að eftirlaunasjóðs- málinu væri blandað inn í umræður um hina nýju launasamþykkt, og hefir ekki verið hreyft við því máli síðan, hvað sem síðar kann að verða. Pioneer. Blaðið. Með þessu tölublaði af Starfsmanna- blaði Reykjavíkur hefst annar árgang- ur blaðsins. Til fyrsta árgangs verða að- eins talin tvö tölublöð, samtals 34 síð- ur lesmáls, sem út komu á árinu 1938, en útgáfa þriðja tölublaðsins, sem átti að koma út um jól, fórst fyrir, en ástæð- an var mikið til hin sama og fyrir drætt- inum á útkomu þessa fyrsta tölublaðs annars árgangs: hinn sífelldi dráttur á því, að hægt væri að birta nokkurnveg- inn endanlega niðurstöðu í launamálinu. —Biður ritnefndin velvirðingar á því, að jólablaðið kom ekki út, og þetta tölu- blað í seinna lagi. Vonar ritnefndin, að takast megi að koma út tilskildum tölu- blaðafjölda á þessu ári, en hún leggur áherzlu á, að til þess að það megi tak- ast og blaðið geti orðið starfsmönnum Reykjavíkurbæjar til gagns og ánægju, þá verði þeir að leggja blaðinu meira að mörkum, en raun hefir á orðið. — Blaðið á að vera nýtt tengiafl manna í milli í Starfsmannafélagi Reykjavíkur- bæjar, en til þess að það megi verða, verða menn að láta í ljósi hugsanir sín- ar og skoðanir í blaðinu.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.