Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Qupperneq 11

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.03.1939, Qupperneq 11
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVÍKUR 7 gjörð fyrir starfsmenn Reykjavíkur- bæjar. Virðingarfyllst 1 launanefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurbæjar Jóh. G. Möller. Nikulás Friðriksson, með fyrirvara. Lárus Sigurbjörnsson. Framanritað bréf var lagt fram á sameiginlegum fundi launanefndar Starfsmannafélags Reykjavíkurbæjar og stjórnar félagsins, og er stjórnin fyrir sitt leyti samþykk framangreindri aðstöðu launanefndar. 1 stjórn félagsins, auk formanns. Magnús Þorsteinsson. Bergsveinn Jóns- son. Jón Jónsson. Pétur Ingimundarson. Bjarni Eggertsson. Sig. Þorsteinsson, með fyrirvara að því er snertir vélstjóra. Breytingatillögur launanefndar St. R. 6. gr. launasamþykktarinnar er að mestu samhljóða 19. gr. í frumvarpi launanefndar bæjarstjórnar að launa- reglugjörð fyrir starfsmenn Reykjavík- urbæjar. Við þessa gr. gerði launanefnd St. R. svofelldar breytingartillögur: a) Önnur málsgreinin „engar ívilnan- ir o. s. frv.“ falli niður. b) Á eftir „mati til skatts“ komi: >>Þannig að frádráttur nemi % af mat- inu fyrir 5 lægstu launaflokkana, en */5 fyrir þá hærri, enda sé húsnæðið miðað við þarfir starfsmanns". Greinargerð fyrir breytingartillögum: a) Með því að fella niður orðin „engar ívilnanir o. s. frv.“, er sérstaklega átt við, að starfsmenn vilji ekki afsala sér rétti til hinnar svokölluðu auka-dýrtíð- aruppbótar, sem árlega hefir verið greidd og miðuð við ómagaf jölda. Þó að þessi auka-dýrtíðaruppbót sé einkar lítil, undanfarin ár aðeins 20 kr. pr. ómaga, þá er hún spor í rétta átt og viðurkenning á því, að taka beri tillit til ómagaframfærslu starfsmanna í launum þeirra. b) Það þykir fullmikið að meta þjón- ustubústaðarleigu og önnur fríðindi fullu mati til skatts til launafrádrátt- ar, þar sem slík fríðindi eru sjaldnast fyrirfram sniðin eftir persónulegum þörfum. Kemur þetta eðlilega þyngra niður á lægri launaflokka og gerir breyt- ingartillagan því ráð fyrir mismunandi háum frádrætti. 7. gr. er samhljóða 20. gr. launareglu- gjörðar, nema hvað samþykktin hefir upptalningu þeirra starfsmanna, sem hafa rétt til einkennisbúninga. Þá til- tekur 7. gr. að gjaldkerar skuli alhr hafa mistalningsfé, 1000 kr. hver, en um það hafði launanefnd St. R. gert breytingartillögu, því að í 20. gr. reglu- gjörðarinnar var aðeins tiltekið mistaln- ingsfé bæjargjaldkera. 8. gr. er að mestu samhljóða 21. gr. launareglugjörðar með viðbót um sum- arleyfi frá 12. gr. reglugjörðarinnar. Til skýringarauka á innihaldi 8. greinar eru hér teknar upp 21. gr., 12. gr. og 13. gr. reglugjörðarinnar, hin síðasta vegna þess, að vísað er í reglur um sumarleyfi, „sem gilda um þau á hverjum tíma“ í 8. gr. samþykktarinnar. Greinunum fylgja breytingartillögur launanefndar St. R. ásamt greinargjörð fyrir þeim: 21. gr. Bæjarráð setur reglur um starfstíma í hverri starfsgrein.

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.