Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Síða 12
8
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
Enginn fastur starfsmaður bæjarins
hefir rétt til aukagreiðslu fyrir eftir-
vinnu, helgidagavinnu eða næturvinnu; í
þeim starfsgreinum, þar sem hún er
óhjákvæmileg, greiðist ekki aukalega
né neinar uppbætur fyrir hana, enda fái
þeir starfsmenn frí á öðrum tímum, sem
því svarar og eftir þeim reglum, er um
það gilda eða settar kunna að verða.
Breytingartillaga við 21. gr.:
a) Við fyrri málsgrein bætist: ,,í
samráði við Starfsmannafélag Reykja-
víkurbæjar eða fulltrúa þess og for-
stjóra bæjarstofnana. Skulu reglurnar
prentaðar með samþykkt þessari og af-
hentar öllum föstum starfsmönnum.
Síðari málsgrein orðist svo:
b) Fastir starfsmenn í 3. launaflokki
og með hærri launum eiga ekki rétt á
yfirvinnulaunum fyrir yfirvinnu, sem
nauðsynleg er til að lúka við þau störf,
sem leiða af stöðu þeirra. Ef þessum
starfsmönnum eru falin aukaleg störf,
sem leiða af sér yfirvinnu, skal bæjar-
ráð ákveða, hvort vinnan er þess eðlis,
að hana beri að launa aukalega. Aðrir
fastir starfsmenn eiga rétt á yfirvinnu-
launum fyrir störf, sem þeim eru falin
af yfirmönnum utan venjulegs vinnu-
tíma. Yfirvinnulaun miðist við tímakaup
Viso af mánaðarlaunum hlutaðeigandi
með 25% viðauka fyrir fyrstu 3 stund-
irnar; en með 50% viðauka fyrir það,
sem fram yfir er 3 stundir. Fyrir yfir-
vinnu um nætur frá kl. 21 til kl. 8 og
fyrir vinnu á dögum næst á undan stór-
hátíðum, svo og fyrir vinnu á sunnu-
dögum og helgidögum greiðast yfir-
vinnulaun með 75% viðauka. Fyrir að
mæta til þjónustu samkv. skipun greið-
ist yfirvinnuþóknun samsvarandi 1
vinnustund. Ef bæjarráð telur hentugt,
getur það ákveðið taxta, er gildi í
ákvæðisvinnu fyrir ákveðna tegund
vinnu. Sérhver starfsmaður er skyldur
að vinna yfirvinnu í sinni starfsgrein
eftir fyrirmælum yfirmanns, ef vinnan
fer eigi fram úr 25 stundum á mánuði.
Engum má fela meiri yfirvinnu en 30
stundir á einum mánuði, nema með leyfi
borgarstjóra eða hlutaðeigandi for-
stjóra. Yfirvinnutími reiknast í heilum
stundum, hálf stund eða meira reiknist
sem ein yfirvinnustund, minna en hálf
stund reiknist ekki. Einn hálftími í
beinu samhengi við venjulegan vinnu-
tíma reiknast ekki sem yfirvinna.
Reikninga fyrir yfirvinnu skal sund-
urliða, þannig að séð verði á hvaða dög-
um yfirvinnan er framkvæmd, hve
margar stundir koma á hvern dag og
á hvaða tíma dags unnið er. Eigi má án
leyfis borgarstjóra eða hlutaðeigandi
forstjóra, í umboði þeirra borgarritara
eða deildarstjóra, setja starfsmann til
yfirvinnu á þeim tíma dags eða á þeim
dögum, sem 75% viðaukinn gildir. Sam-
þykki til slíks ber því aðeins að veita
að sannanlegt sé, að hjá því verði eigi
komist. Meiri háttar aukalega vinnu ber
eigi að fela starfsfólki í yfirvinnu, held-
ur að ráða til þess sérstaka aðstoðar-
menn. Sama gildir um föst störf, sem
starfsfólk eigi fær komist yfir á venju-
legum vinnutíma.
Um 21. gr.:
a) Sem hagsmunafélag starfsmanna
bæjarins getur Starfsmannafél. Reykja-
víkurbæjar ekki látið afskiftalaust
hverjar reglur verði settar um starfs-
tíma í hverri starfsgrein, en vill gæta
þess, að þar verði fullur jöfnuður með
tilliti til launa. Eins er eðlilegt að for-