Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Qupperneq 17
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVÍKUR
13
Jónsdóttur frá Akranesi. Börn þeirra
hjóna eru: Jón, Dóra, Ólafur, Jóhanna
og Benedikt. *
Brynjólfur Sigurðsson,
gasstöðvarstjóri varð fimmtugur 31.
jan. s. 1. Hann er sonur séra Sigurðar
Jenssonar, er var prófastur í Flatey og
konu hans, frú Guðrúnar Sigurðardótt-
ur. — Brynjólfur fór ungur til Noregs
og lærði þar allt sem að gasgerð lýtur,
en fyrir um 20 árum kom hann heim
aftur og gjörðist forstjóri Gasstöðvar
Reykjavíkur, og hefir verið það síðan.
Þetta tímabil hefir gasnotkun margfold-
ast og f járhagur fyrirtækisins orðið svo
glæsilegur, að fá dæmi munu vera til hér
í bæ, og er óskandi að bæjarfélagið eigi
eftir að njóta starfs Brynjólfs Sigurðs-
sonar enn um langan aldur. Brynjólfur
er kvæntur Helgu Hólmfríði Jónasdótt-
ur frá Akureyri. Synir þeirra hjóna eru:
Brynjólfur og Sigurður.
Kunnugur.
Úr félagslífinu.
Fundir og skemmtanir.
Á hinu nýbyrjaða ári hefir Starfs-
mannafélagið haldið jólatrésskemmtun
með dansleik og árshátíð sína, auk aðal-
fundar. Fóru skemmtanirnar hið bezta
fram og var jólatrésskemmtunin mjög
vel sótt af börnum og unglingum félags-
manna, en mun lakar af félagsmönnum
en í fyrra. Árshátíðin var heldur ekki
eins vel sótt af félagsmönnum og í
fyrra, og er það skaði, ef félagsmenn
afrækja þessar tvær gleðisamkomur,
sem félagið beitir sér fyrir á hverju ári.
+
Sigurður Þorkelsson,
sorphreinsunarmaður, lézt í Lands-
spítalanum 21. nóv. s.l. Hann var fædd-
ur 10. júlí 1873.
Sigurður réðist í þjónustu bæjarins
árið 1918, en vegna heilsubrests lét
hann af störfum í árslok 1937. Hann
hafði áður stundað sjómennsku á tog-
urum, og var um mörg ár gjaldkeri Sjó-
mannafélagsins, og í miklu áliti hjá
stéttarbræðrum sínum vegna lipurðar
og trúmennsku við það starf.
Þegar Starfmannafélagið var stofnað
gerðist hann einn af stofnendum þess,
og var mjög áhugasamur um málefni
félagsins. Hann var um mörg ár end-
urskoðandi félagsreikninganna.
Skemmtiatriðin á árshátíðinni voru að
þessu sinni sérlega vel til fundin, og
snjallar ræður fluttar, en hvernig væri
það, að breyta einu sinni til og láta leika
,,revyu“ úr félagslífinu á næstu árs-
hátíð? Revyuna mætti hæglega semja