Bankablaðið - 01.12.1966, Page 6
SIGURÐUR ÖRN EINARSSON:
Finlands Bankmannaförbund
Hinn lfi. nóvember 1931 var haldinn
stofnfundur Finlands Bankmannaförbund.
Sambandið átti því 35 ára afmæli nýlega
og var þess minnst sérslaklega dagana 4.-6.
nóvember s. 1. í Helsinki og þá jafnframt
haldið ársþing Finlands Bankmannaför-
bund. Undirritaður var fulltrúi S.Í.B. við
hátíðahöldin og eins á ársþingi F.B.F'.
Hátíðahöldin hól'ust með móttöku í hús-
næði F. B. F. á Lönnrotsgatan 23a föstudag-
inn 4. nóvember kl. 12.00. I>ar voru m. a.
mættir fulltrúar bankamannasambandanna
á hinum Norðurlöndunum og afhentum
við þar gjafir hver frá sínu sambandi. Mér
veittist sú ánægja fyrir hönd S. í. B. að af-
henda F'. B. F. afsteypu af styttu Ásmund-
ar Sveinssonar myndhöggvara „Kona með
strokk“. Kl. 18.00 sama dag var aftur safn-
ast saman lil athafnar sem á dagskránni
var kölluð „fanspikning", sem er í því fólg-
in, að liver viðstaddur rekur einn nagla í
stöng og festir með því fána sambandsins
á fánastöng, en F. B. F. hefur nú nýlega
látið gera félagsfána fyrir sig og var hann
vígður daginn eftir, svo sem fram kemur
hér á eftir.
Laugardaginn 5. nóvember kl. 9.00 hófst
svo árasfundur F. B. F. og var hann hald-
inn í húsakynnum finsks karlakórs. Þar
flutti ég stutta kveðju frá S. í. B. til þings-
ins og finnskra bankantanna. Eftir kveðjur
frá erlendum gestum var gengið til venju-
legra aðalfundarstarfa þar sem m. a. for-
maður F. B. F. flutti skýrslu stjórnar fyrir
yfirstandandi starfsár. Nokkrar umræður
urðu um skýrslu stjórnarinnar og var hún
síðan lögð fyrir allsherjarnefnd til athug-
unar. Lesnir voru upp reikningar fyrir
sama tímabil. Fundi var haldið áfram fram
yfir hádegi, en kl. 15.00 var hátíðasam-
koma í fundarsal háskólastúdenta. Þar
flutti Kaj Saxen yfirlit yfir sögu F. B. F.
frá stofnun. F'luttar voru kveðjur frá Við-
skiptamálaráðherra, frá bankasamtökum,
frá TOC (nokkurs konar ASÍ þeirra
Finna) og frá Norræna bankamannasam-
bandinu. Einn af fyrstu formönnum F. B.
Paavo Aarino vígði fána F. B. F. og var
hann borinn í salinn við mikla viðhöfn og
var það mjög hátíðleg stund. Nokkrir af
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
KR. ÞORVALDSSON & CO.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
SÆLGÆTISGERÐIN OPAL H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
DRÁTTARVÉLAR H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
HAMPIÐJAN H.F.
4 BANKABLAÐIÐ