Bankablaðið - 01.12.1966, Síða 35
Frá Starfsmannafélagi
Seðlabankans
Segja má að lífið hafi gengið sinn vana-
ganga hjá S. F. S. Aðalfundur félagsins var
haldinn í janúar og eftirtalin kosin í stjórn
félagsins fyrir næsta kjörtímabil:
Stefán M. Gunnarsson, formaður.
Ágústa Johnson, ritari.
Stefán B. Stefánsson, gjaldkeri.
Guðjón Jónsson, varaformaður.
Sigfús Styrkársson, meðstjórnandi.
Til vara Sighvatur Jónasson og Jón V.
Halklórsson.
Skakferð.
í maí var efnt til skakferðar, þátttaka var
nú ekki nema í meðallagi, enda sjóveður
slæmt. Sjóveiki gerði nokkuð vart við sig
varð veiði mjög lítil.
Sumarferðalag.
Farið var í sumarferðalag í júlímánuði.
Farið var í Þórsmörk og gist þar eina nótt.
Þátttaka var mjög góð og heppnaðist ferð-
in vel í alla staði. Síðar, eða um haustið,
var efnt til myndasýningar úr þeirri ferð og
fleirum og rifjuð þannig upp mörg góð
endurminning úr ferðinni og öðrum slík-
um.
Jólagleði félagsins var haldin 10. des. s.
1. og hefur hún aldrei verið svo fjölmenn.
Þegar þetta er ritað, er fram undan jóla-
trésskemmtun fyrir börn félagsmanna, og
einhvern veginn er það svo, að til lienn-
ar hlakka bæði börnin og þeir fullorðnu.
Blaðaútgáfa.
Á árinu hóf S. F. S. útgáfu blaðs, sem ætl-
að er að koma út eftir þörfum og ástæðum.
Blaðið nefnist SFS-tíðindi. Fyrsta tölublað-
ið var að mestu helgað Þórsmerkurferða-
lagi því, sem áður er um getið. Næsta tölu-
blað er nú í undirbúningi.
Á vegum Starfsmannafélagsins og með
styrk frá Seðlabankanum fóru tveir menn,
þeir Jóhann T. Ingjaldssoon og Stefán M.
Gunnarsson á viku námskeið, sem haldið
var á „Venastul“, dvalarheimili eða
kannske öllu heldur fjallahóteli Norges
Bank, í september s. 1. Frá því ferðalagi
verður nánar greint í næsta blaði SFS-tíð-
inda.
Aðalféhirðir Seðlabankans, Þorvarður
Þorvarðsson, varð 65 ára á árinu. Þorvarð-
ur hefur starfað í Landsbankanum og
Seðlabankanum í meira en fjörutíu ár og
notið almennra vinsælda samstarfsfólks
síns. Starfsfólk Seðlabankans tók sig sam-
an og færði Þorvarði gullúr að gjöf í til-
efni þessara tímamóta og sem þakklætis-
vott fyrir langa og stutta samveru í bank-
anum. Þorvarður bauð öllu starfsfólki bank-
ans heim til sín þennan dag og var það
mikill og góður fagnaður.
Á þessum stað skulu honum enn færðar
hamingjuóskir og þakkir.
Sigtryggur Klemensson tók til starfa sem
bankastjóri Seðlabankans 1. júlí s. 1. Starfs-
mannafélag Seðlabankans notar þetta tæki-
færi til að bjóða hann velkominn og efast
ekki um að framundan sé gott samstarf við
hann um ókomna tíð.
13. des. 1966.
SMG.
GLEÐIlECt JÓL!
Farsœlt nýtt ár'
OTTO A. MICHELSEN
BANKABLAÐIÐ 33