Bankablaðið - 01.07.1974, Page 19
(niálastarfi bankajnanna. Hann var nm
nokktur ár í stjórn Félags starfsmanna
Landsbanka Islands. Þá átti hann einnig
sæti í stjórn Sambands íslenskra banka-
manna
Ég átti samstarf með Jóliannesi að fé-
lagsmálum bankamanna, þar var hann
sem annars staðar tillögugóður og raun-
sær. Lagði alltaf gott til mála og var víð-
sýnn félagsmálamaður. Veit ég, að liann
jninnist afskipta sinna af félagsmálum
bankamanna með ánægju. Var þar all-
nokkur árangur af starfi hans sem ann-
ars staðar, þar sem liann hefur lagt liönd
á plóginn.
Bankamenn þakka aifmælisbamiim á-
nægjidegt samstarf og óska honum og
fjölskyldu hans velfarnaðar um alla fram-
tíð.
Bjarni G. Magnússon.
'Bi'órn Zryggvason
‘Jimmíugur
Björn Tryggvason, aðstoðarbankastjóri
við Seðlabanka Islands og formaður Rauða
Ivross Islands, varð fimmtugur 13. maí
1974.
Björn er fæddur í Reykjavík, sonur
hjónaana: önnu Klemenzdóttur og
Tryggva Þórhallssonar, fyrrverandi forsæt-
isráðherra. Að loknu námi í Menntaskól-
anum í Reykjavík og lögfræðiprófi frá
lláskóla Islands, gerðist hann fastnr starfs-
maður hjá Landsbanka Islands, en mun
hafa á námsárum sínum starfað í Út-
vegsbankanum og víðar. I Landsbankan-
um starfaði Bjöm um árabil. Þar liafði
hann mikil afskipti af félagsmálum banka-
manna. Formaður í Félagi starfsmanna
Landsbanka Islands og formaður í Bygg-
ingarsamvinnufélagi bankamanna. Þá sat
nann nokkur ár í stjóm Sambands ís-
ienskra bankamanna. Áður en liann gerð-
ist starfsmaður í Seðlabanka Islands var
hann stjómarfulltrúi Norðurlanda í stjóm
Alþjóðabankans. Að loknu því starfi réðst
Bjöm í þjónustu Seðlabanka Islands og
hefur gegnt starfi aðstoðarbankastjóra hin
síðari ár.
Björn hefur einnig verið formaður
Rauða Kross Islands í nokkur ár, auk þess
starfað að öðrum félagsmálum.
Við, sem höfum starfað með Bimi, að
félagsmálum bankamanna, þökkum á-
nægjulegt samstarf og óskum afmælisbam-
inu og fjölskyldu hans lieilla um alla
framtið.
Bjarni G. Magnússon.
BANKABLAÐIÐ — 17