Bankablaðið - 01.07.1974, Page 24
Stefdn N. Gunnanson:
Svæðasambönd
Erindi flutt á vornámskeiSi S. I. B. 8.
— 10. júní 1974
Eg mun liér á eftir gera tilraun til að
útlista nokkuð þá hugmynd eða hugar-
fóstur ýmsra áhrifaaðila innan S. I. B.
um stofnim svokallaðra svæðasambanda.
Eg vil þó í uppliafi taka fram, að þessi
ræða mín er ekki á nokkum hátt flutt
í nafni stjórnar S. I. B. heldur mim ég
reyna að tína fram þær hugmyndir, sem
ég hef gert mér tun málið.
Hugmyndin um stofnun svæðasambanda
er þegar orðin nokkurra ára og liefur satt
að segja lítið þokað, þ ar sem strax í upp-
liafi kom upp allmikil andstaða og þá
fyrst og fremst frá stærstu starfsmanna-
félögunum. Samt sem áður er þessi hug-
mynd enn við líði og trú mín er sú, að
ef Samband íslenskra bankamanna á það
fyrir höndum að eflast og styrkjast, þann-
ig að það verði virkara en nú er, sem
afl í þjóðfélaginu sem verði að taka til-
lit til, ekki síður en annarra launþega-
samtaka, þá sé nauðsynlegt, jafnvel lífs-
nauðsynlegt fyrir bankamenn að athuga
sinn gang og huga betur að uppbyggingu
sinna eigin samtaka.
Til þess að samtök sem okkar geti orðið
virkt og öflugt afl í þjóðfélaginu er, að
mínu viti, tvennt nauðsynlegt, í fyrsta lagi
einhugur livar sem er út á við og í öðru
lagi fjölmenni, það er að segja að sam-
tökin liafi innan sinna vébanda alla þá
aðila, sem starfsstéttinni tilheyra.
Áður en ég kem að því að skýra nánar
livað í því felst, þegar talað er tun svæða-
sambönd, þykir mér rétt að rifja upp
þær greinar í löguni S. I. B., sem því
máli við koma og því eru skyldastar. 2. gr.
laga S. I. B. fjallar mn tilgang sambands-
ins og þar segir:
Tilgangur sambandsins er:
a) Að vinna að skipulagðri félagsstarf-
semi íslenskra bankamanna.
b) Að gæta liagsmuna bankamanna í
hvívetna.
c) Að liafa forustu í starfs- og kjaramál-
um bankamanna og vinna að því að bæta
og samræma kjör þeirra í samvinnu við
aðildarfélögin.
d) Að vinna að því að auka alhhða
menntun, þekkingu og starfshæfni banka-
nianna, einkum í bankafræðilegum efnum,
með blaðaútgáfu, fræðsluerindum, nám-
skeiðmn eða á hvern þann hátt, sem heppi-
legur er talinn á hverjum tíma.
e) Að koma fram fyrir hönd íslenskra
bankamanna á innlendum og erlendum
vettvangi.
3. grein liljóðar svo:
Bankamenn teljast samkvæmt lögum
þessum, allir starfsmenn íslenskra banka
og sparisjóða, enda gegni þeir slíkum störf-
um sem aðalstarfi.
4. grein segir:
Rétt til aðildar að sambandinu liafa:
a) Starfsmannafél. banka og sparisjóða.
b) Einstakhngar, sem starfa við shkar
22 — BANKABLAÐIÐ