Bankablaðið - 01.07.1974, Page 33
Þórir Kjdrtdimon
BANKAFULLTRÚI
MINNING
Þeim fækkar nú óðum elclri starfsmönnun-
um í Landsbanka Islands. Þórir Kjartans-
son, bankafulltrúi, lést að Landsspítalan-
um í Reykjavík 12. júní sl., 65 ára að
aldri. Með Þóri er í valinn fallinn einn af
eldri starfsmönnum Landsbankans, eftir
fjörutíu ára starf. Hann var lengst af
starfsmaður í víxladeild bankans og full-
trúi þar bin síðari ár.
Þórir var Reykvíkingur, fæddur 6. júní
1909. Sonur Kjartans Konráðssonar og
Magnþóru Magnúsdóttur. Hann stundaði
nám í Menntaskólanum í Reykjavík 1928
og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Islands
1933 og stundaði nokkuð lögfræðistörf, en
réðist síðan í þjónustu Landsbanka Islands
og var þar í ævistarfi. Hin síðari ár átti
Þórir við mikla vanheilsu að stríða, en var
allajafnan við störf í Landsbankanum þar
til nú fyrir nokkrum mánuðum, að liann
hefur háð sitt helstríð sem lauk eins og
áður segir hinn 12. júní sl. Hann var kvænt-
ur Steinunni Sveinsdóttur og áttu þau þrjú
böm. Heimili bans var ógleymanlegt öll-
um, sem þar til þekktu. Þórir var mikill
og góður heimilisfaðir. I daglegri um-
gengni var hann fremur fáskiptinn, en
hvers manns hugljúfi við nánari kynn-
ingu. Þórir var vel gerður maður að vallar-
sýn. Kátur og hnittinn í framkomu.
Traustur vinur vina sinna.
A yngri árum tók Þórir mikinn þátt
í starfi Knattspymufélagsins Víkings og
varði mark í kappleikjum félagsins og
varð að mig minnir Islandsmeistari. Þá
starfaði hann all nokkuð í reglu Oddfell-
owa. Nokkurn þátt tók hann einnig í fé-
Iagsstarfi bankamanna.
Við Ieiðarlok senda starfsmenn Lands-
banka Islands aðstandendum Þóris samúð-
arkveðjur. Þakka liinum látna ánægjulegt
samstarf og harma fráfall hans.
Bjarni G. Magnússon.
A LÆKNINGASTOFUNNI.
Miðaldra kona kom inn á lœkningastofu
til þess aS fá penisilinsprautu. DálítiS feim-
:n stóS hún svo þarna meS buxurnar dregn-
ar lítiS eitt niSur á lœrin.
„Hvorum megin á aS sprauta mig?" seg-
ir konan.
Lœknirinn sló þessu upp í gaman og
sagSi: ,,þaS fer allt eftir því hvorum meg-
in í pólitíkinni þér standiS.”
Konan lét sér í engu bregSa, en svaraSi:
„En ef ég nú vœri í miSflokknum” ? Hér
lauk samtalinu sjálfkrafa.
BANKABLAÐIÐ — 31