Bankablaðið - 01.07.1974, Qupperneq 36
Námskeið
Bankamannaskólans
Vornámskeið Bankamannaskólans 1973
fór fram í húsakynnum skólans að Lauga-
vegi 103. Námsefnið var eftirfarandi:
I. a) Reiknistofa bankanna, markmið
og þjónusta.
b) Ný vinnslutækni OCR (optiskur
lestur). — Fjarsendingar.
c) Sameiginleg hönnun bankabókhalds.
II. Sigurgeir Jónsson, liagfræðingur,
flutti fyrirlestur um „Gengið sem liag-
stjórnartæki”.
III. Kristinn Hallgrímsson, hagfræðing-
ur, flutti fyrirlestur imi „Hagtölur mán-
aðarins, framsetnmgu og notkun þeirra”.
Á námskeiðinu um Reiknistofuna var
fjallað um tildrög og stofnun Reiknistof-
unnar, starfslið liennar og stjóm. Skýrt
var frá markmiði sameiginlegrar reikni-
stofu og hvaða þjónustu væri gert ráð
fyrir að veita. Haldinn var fyrirlestur um
rafaugnalestur eða Optical Characliter
Recognition (OCR) og nýjungar á sviði
fjarsendinga. Er mikilvægt, að banka-
starfsfólk öðlist þekkingu á þessu sviði,
þar sem Reiknistofan mun liefja rafaugna-
Jestur á tékkum strax og vélaútbúnaður
verður settur upp. Að lokum var skýrt frá
undirbúningi sameiginlegrar bönnimar á
bankabóklialdi.
Námskeiðið um Reiknistofima var end-
urtekið vegna mikillar aðsóknar og vom
38 bankastarfsmenn þátttakendur í því,
en 33 í því síðara. Einar Pálsson, forstöðu-
maður Reiknistofunnar, annaðist kennslu
ásamt Jóni V. Karlssyni og Gimnari Ingi-
mundarsyni frá IBM. Er til atliugunar að
lialda námskeið úti á landi t. d. á Akur-
eyri.
I erindi sínu inn „Gengið sem hag
-stjórnartæki” fjallaði Sigurgeir Jónsson
um hinar ýmsu hliðar á notkun gengis-
ins sem hagstjórnartækis hér á landi og
erlendis. Gerði liann grein fyrir þeim
breytingum, sem orðið liafa á öllum að-
stæðum eftir að fastgengiskerfið leystist
upp á síðastliðnu ári og almennt var tek-
ið upp fljótandi gengi í lieiminum. Loks
drap Sigurgeir ái livern þátt sveigjanleg
gengisskráning gæti átt í lausn aðsteðjandi
efnabagsvandamála liér á landi.
Ccdur a( slörfum
Allt frá 1958 hefur Ake Olhagen starfað sem
ritstjóri við blað sænska bankmainnasambands-
ins „Bankvár'den” en hefur nú sagt upp því
starfi frá og með 31. ágúst næst komandi.
Ake Olhagen hefur gegnt fleiri störfum fyrir
sænska bankamannasambandið en sem rit-
stjóri blaðs þess, meðal _ annars hefur hann
stjórnað mörgum af þeim námskeiðum, er
Sbmf hefur haldið í Bergendal, sem margir
íslenskir bankamenn hafa sótt bæði fyrr og
síðar. Ake var með okkur á helgarráðstefnu
austur á Hallormsstað vorið 1969.
?4 — BANKABLAÐIÐ