Bankablaðið - 01.07.1974, Síða 40

Bankablaðið - 01.07.1974, Síða 40
Jréilir frá siarfsmannafélögunum VR ALÞYÐUBANKANUM Aðalfundur F. S. A. var lialdinn þann 24. maí 1974. I stjórn voru kosnir: Er- lingur A. Jónsson, form., Elo Gartman, gjaldk., Svanhildur Sigurðardóttir, ritari, og varam. Steingrímur Þórðarson og Vil- borg Bjarnadóttir. Bankinn keypti í vor sumarbústað, sem er í Rauðukusunesi (Kárastaðanesi) við Þingvallavatn. Hann er af sömu gerð og Lústaðir Landsbankans við Selvatn. Bú- staðnum fylgja öll nauðsynleg búsáhöld, og einnig bátur með utanborðsmótor. Hverjam starfsmanni gefst kostur á einn- ar viku dvöl í bústaðum ár hvert. I vetur gengust nokkrir röskir piltar í bankanum fyrir kaupum á borðtennis- borði, sem komið var fyrir í kjallara bank- ans. Er nú leikið af miklum áliuga, og hafa borðtennismót þegar verið haldin. A efstu hæð bankans er verið að inn- rétta nýtt og fullkomið eldbús ásamt mat- sal og setustofu fyrir starfsfólk. Þar verð- ur hægt að lialda kvöldvökur og dans- ieiki, einnig verður innréttað sérherbergi fyrir starfseini Starfsmannafélagsins. Nú hefur bankinn tekið I. B. M. kerfið í sína þjónustu á flestum sviðum, og hefur því öll starfsaðstaða breyst mjög til batn- aðar. ÚR VERSLUNARBANKANUM Aðalfundur starfsmannafélagsins var haldinn 2. maí 1974. Stjómin var þar ein- róma endurkjörin og starfar því í eitt ár í viðbót. I stjórn eru: Helgi Hólm, fomi., Þuríður Sölvadóttir, ritari, Gumilaugur Sveinsson, gjaldkeri. I varastjóm vom kos- in þau Guimar Þorvaldsson og Björg Ingadóttir, þar eð Sigríður Jósefsdóttir gaf ekki kost á sér. Á fundinum var rætt um ráðstafanir á peningasjóði félagsms, og komu fram ýms- ar bugmyndir. T. d. að kaupa land fyrir sumarbús. Sú hugmynd er þegar komin í framkvæmd og er verið að festa kaup á ca. 2 ha. landi í Þjórsárdal og síðan verð- ur keypt sumarhús. Áætlað er, að fram- kvæmdir hefjist nú í sumar. Starfsfólk bankans befur í sumar, eins eg í fyrra sumar, átt kost á orlofsdvöl á sumarhóteli að Laugarvatni. Tveir starfsmenn bankans sóttu vomám- skeið S.I.B. að Bifröst í Borgarfirði dag- ana 8.—10. júní. Að lokum má nefna þá nýbreytni, sem tekin var upp mn síðustu jól, að haldin var jólatrésskemmtun að Hótel Loftleiðmn fyrir börn starfsfólksins. Sú skemmtun var mjög vel sótt og vel heppnuð. tS — BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.