Jazzblaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 4
•SlSSf :•
Hallur S'ímonarson:
ÍSLENZKIR H LJÓÐFÆRALEI KARAR
Trausfi Th. Óskarsson
Trausti Th. Óskarsson er fæddur hér í
Reykjavík 19. nóv. 1927. Þegar hann var
fimmtán ára gamall fékk hann mikinn á-
huga fyrir guitar, en þá heyrði hann amer-
ískan sjóliða, sem var hér í flotanum, leika
á guitar í Rauða Kross bragganum við
Hringbraut, en þangað kom Trausti oft
því þar gat hann heyrt margar afbrags
hermannahljómsveitir leika. Hann eignað-
ist guitar litlu seinna og lærði þá nokkur
grip hjá kunningja sínum, er bjó í sama
húsi og hann. Um haustið 1943 byrjaði
hann að læra hjá Sigurði Briem. Hjá hon-
um var hann í nokkra mánuði eða þangað
til hann var svo heppinn að kynnast amer-
ískum hermanni, Wilson að nafni, er var
góður guitarleikari. Wilson sá fljótt að í
Trausta bjó efni í ágætan guitarleikara, og
kom hann honum því í kynni við annan
hermann, hinn þekkta guitarleikara Jimmy
Webster, þegar hann varð að hverfa héðan
af landi burt.
Webster var mjög góður rhythma-leikari
og hafði leikið með frægum bandarískum
hljómsveitum, t. d. Benny Goodman. Trausti
lærði mikið hjá honum og þó sérstaklega
að slá góðan rhythma. En þar sem her-
skyldan kallaði, varð Webster því miður að
fara héðan af landi aðeins þrem mánuðum
eftir að Trausti kynntist honum. Síðan hef-
ur Trausti ekki notið neinnar kennslu svo
teljandi sé. Um vorið 1944, byrjaði hann
að leika á dansleikjum og þá aðallega á
skóladansleikjum, og þegar samkomuhúsið
Röðull tók til starfa lék hann þar niðri i
nokkurn tíma. Sumarið 1945 byrjaði hanti
að leika að Hótel Borg í hljómsveit Þóris
Jónssonar. Hann lék þar eingöngu rhythma
og fór honum mikið fram, sem hann þakkar
að mestu Jóhannesi Eggertssyni, trommu-
leikaranum í hljómsveit Þóris, en Jóhannes
er eins og allir vita hinn færasti músikant
og mjög góður rhythma-leikari. Eftir að
hafa leikið með Borgarhljómsveitinni í tæpt
ár, hætti Trausti og byrjaði í hinni nýju
hljómsveit, er Baldur Kristjánsson píanó-
leikari Borgarhljómsveitarinnar fór með í
Tjarnarcafe. En hann var aðeins þrjá mán-
uði með honum, því þá stofnaði hann ásamt
Hilmari Skagefield og Ólafi Maríussyni
tríó, sem þeir kölluðu „Hawaii-tríóið“. Þetta
tríó varð mjög vinsælt, og komu þeir fram
víða á skemmtunum og léku m. a. í út-
varpið. En síðastliðið haust, þegar Kristján
Kristjánsson stofnaði K.K.-sextettinn, réði
hann Trausta til sín, en hann hefur nú
fyrir stuttu, af óviðráðanlegum orsökum
orðið að hætta þar.
Það er annars eftirtektarvert hvað
Trausti hefur náð mikilli leikni á guitar-
inn, þegar það er athugað að um það bil,
sem hann byi'jaði með hann, gerðist hann
rakaranemi og jafnframt því að vinna allan
daginn á rakarastofunni, þurfti hann að
stunda nám í Iðnskólanum á kvöldin, svo að
tími til æfinga var allt annað en góður, en
það er með guitarinn eins og allt annað, að
„æfingin skapar meistarann". Sem rhyth-
ma-guitarleikari á Trausti vart sinn líkan
4 Ja;A/U,-,f