Jazzblaðið - 01.05.1948, Side 4
Hallur Símonarson:
ÍSLENZKIR HLJÓÐFÆRALEIKARAR
Aage R. Lorange
Aage Reinhard Lorange er fæddur í
Stykkishólmi 29. júní 1907, en fluttist til
Reykjavíkur 1916 með móður sinni. Hann
fékk fljótt áhuga fyrir tónlist og byrjaði
kornungur að læra á píanó og naut kennslu
hinna ágætustu kennara, er völ var á þá,
þeirra Páls ísólfssonar skólastjóra og Emils
Thoroddsen píanóleikara og tónskálds og
1944—46 stundaði hann nám hjá dr. Ur-
bandsitch í tónfræði og píanóleik. Hann
byrjaði strax á menntaskólaárum sínum að
leika dansmúsik opinberlega og þá fyrst á
skóladansleikjum. Var það náttúrlega mjög
erfitt að leika á dansleikjum nokkur kvöld
í viku og þurfa svo að vakna eldsnemma
í skólann á morgnanna.
Gekk þetta svo langt að rektor mennta-
skólans þá, Geir Zoega, hafði í hótunum
við hann að annað hvort yrði hann að
hætta við skólann eða músikina. En Aage
fékk þó samið við hann, þannig að hann
mátti aðeins leika á laugardagskvöldum.
Seinna fékk þó músikin yfirhöndina yfir
skólanum og hætti hann þar námi eftir að
hafa tekið gagnfræðapróf, og síðan hefur
hann helgað tónlistinni alla krafta sína og
eiga Reykvíkingar mjög margar skemmti-
legar kvöldstundir Aage Lorange að þakka.
Fyrsta hljómsveitin, er Aage starfaði við
var hljómsveit Þórarins Guðmundssonar,
en hann var samt ekki fastur meðlimur í
henni. En 1923 var stofnuð hér hljómsveit,
er hét „Jazzband Reykjavíkur" og var Aage
einn af aðal hvatamönnum að stofnun henn-
ar. f henni voru m. a. Aage á píanó, Eggert
heitinn Jóhannesson (faðir Jóhannesar
trommuleikara á Borg) með cornet, Björn
Jónsson (nú kaupmaður á Vesturgötu)
með klarinet og saxafón. Á þessum ár-
um var saxafónninn að ryðja sér til rúms
hér, og var iðulega tekið fram í auglýs-
ingum að leikið væri á saxafón í hljóm-
sveitinni. Eftir að Jazzbandið hætti árið
1924 iék Aage víðsvegar til 1928. Hann var
t. d. eitt ár hjá Bernburg- heitnum fiðlu-
leikara (faðir Poul trommara í hljóm-
sveit Aage) að Hótel ísland og einn
vetur á Hótel Borg. En 1928 byrjaði hann
hjá Karli Runólfssyni, sem þá var nýkom-
inn upp frá Danmörku, þar sem hann hafði
stundað tónlistanám og stofnaði hann sex
manna hljómsveit eftir heimkomuna. Léku
þeir á veturna á Hótel Heklu, en á sumrin
léku þeir á e.s. Gullfoss, er var í strand-
ferðum kring um land og mun það hafa
verið fyrsta íslenzka skipahljómsveitin. 1931
byrjaði Aage með hljómsveit í Iðnó og var
það fyrsta hljómsveitin er bar nafn hans,
en með honum voru þeir Þórir Jónsson á
fiðlu og Bjarni Guðjónsson á trommur.
Var Aage með hljómsveitina í Iðnó fram
til 1936 og smáfjölgaði meðlimum hennar
upp í sex. Á Hótel íslandi lék á þessum
árum þýzk hljómsveit og höfðu þeir þannig
samning við Iðnó, að þegar þeir höfðu
hætt á Hótei ísland kl. 11,30 komu þeir
yfir í Iðnó og léku þar dansleikinn á enda,
en íslendingunum var „sparkað út“. Ekki
4 ^MMmÍ/*ÍIÍ