Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 7

Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 7
mikla leikni til að geta þanið sig upp og- niður eftir borði hljóðfærisins og fram- kallað sem flestar nótur á sem skemmst- um tíma. Til þess að afsanna þetta, þarf ekki að fara lengra en til snillingsins Arm- strong, og athuga sólóar hans, því að jafn- vel þótt hann hafi nóga leikni til þess að taka (leika) hvað sem er, nær hann ætíð mestu valdi yfir hugum hlustenda, þegar hann leikur róleg lög með löngum tónum og gefur sjálfan sig algjörlega á vald leikn- um. Þess má geta að á plötunni Swinc/ That Music (Decca), leikur Armstrong all- an síðasta chorus, nefnilega 32 takta, sam- fleytt á háa C. Fleiri dæmi mætti taka, en nú skulum við snúa okkur aftur að „hin- um frjálsa leik“, improvisationinni. Full tíu ár framan af æviskeiði sínu var jazz- inn eingöngu frjálst leikinn. Jazzhljóm- sveitir voru þá yfirleitt ekki stærri en sex til átta manna og venjulegust hljóðfæra- skipun var: trompet, klarinet og tromhone (básúna) ásamt rhythmasveit, sem í fyrstu innihélt píanó, trommur og stundum hanjó, en seinna breyttist þessi sveit í hina full- komnu rhythmasveit nútímans, en í henni eru auk píanós og trommu, kontrabassi og guitar. Stíll sá er fyrstu jazzhljómsveit- irnar léku, hefur verið nefndur „dixie- land“-stíll, og er hann fi'emur óalgengur orðinn nú til dags. Enda þótt hann sé nú sjaldheyrður, hefur hin improviseraða jazz- músik ekki liðið undir lok, og gerir það vafalaust ekki meðan nokkuð það er til, sem heitir jazz. Hana heyrum við á öllum Jam-sessionum og ótal plötum, enda er hún að flestra áliti skemmtilegasti jazzinn, hæði að leika hann og hlusta á hann. Mig langar til að minnast liér á plötuna Rosetta með Charlie Shavers o. fl. (V-disc), sem að mínu áliti er gott dæmi um afar vel im- proviseraða plötu frá seinni árum. En hún er ekkert einsdæmi og margar fleiri, ekki síðri, mætti nefna, en í upphafi var víst ekki ætlunin að þetta yrði plötulisti, svo að af því verður ekki. Aðalmunur á improviseruðum og útsett- um jazz er, eins og nöfnin benda til, sá, að hinn síðarnefndi er skrifaður niður á nótur og leikinn eftir þeim, sem aftur á móti er aldrei gert, enda ekki hægt að gera, við þann fyrrnefnda. Eins og gefur að skilja, hlýtur útsettur jazz því að vera stirðari og meira einhliða, bæði vegna þess að þar koma eingöngu fram hugmyndir útsetjarans og einnig vegna þess að frjáls- ræði hvers einstaks hljóðfæraleikara eru þar settar miklum mun þrengri skorður en í improviseruðum jazz, vegna þess að þar sem t. d. mörg blásturshljóðfæri leika saman eins og eitt margraddað, verða menn að vera með allan hugann við nóturnar, til þess að forðast ónákvæman samleik. Þegar fleiri en sex til átta menn leika sam- an, sérstaklega ef blásturshljóðfærin eru fleiri en fjögur, er nauðsynlegt að „setja út“ fyrir hljómsveitina í fyrsta lagi til þess að forðast af mikinn hávaða í leikn- um og í öðru lagi til að komast hjá til- breytingaleysi, bæði fyrir hlustendur og hljóðfæraleikarana, sem leiðir af því, þeg- ar fjórir eða fleiri „blásarar" (blásturs- hljóðfæraleikarar) improvisera stöðugt. Slíkar „jam“-hljómsveitir, en svo eru þær hljómsveitir, sem eingöngu leika improvis- eraðan jazz stundum nefndar, geta því að- eins staðist að í þeim séu snillingar, sem eru færir um að gera stöðuga tilbreytingu í leik sinn. Eins og ég gat um áður, er eitt aðal einkenni jazzins, og jafnframt það, sem hann hefur fram yfir aðra músik, sólóar. f þeim kemur fram mestur jazz og án þeirra missir hann gildi sitt. Hljómsveit- ir, sem liafa engum sólóistum á að skipa, geta því varla talizt jazzhljómsveitir, en sem betur fer eru þær ekki margar. Stund- um reyna þeir hljóðfæraleikarar, sem svo illa eru á vegi staddir, að geta ekki af ein- hverjum ástæðum leikið sóló, að skrifa upp sólóar annarra manna og leika þær sjálfir, en oftast verður líkt að hlusta á þær og að drekka upphitað kaffi, því að í þeim heyrir maður ekkert annað en tóna liljóð- færisins tekna án nokkurar tilfinningu. Oft vill líka bregða við, að útsetningar hljómi líkt og uppskrifaðar sólóar, en mjög góðir og samæfðir hl jóðfæraleikarar geta þó Framh. á bls. 15.

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.