Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 13

Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 13
^illiams. Ten6r-sax leikarinn A1 Sears tók v>ð af Ben Webster og er miklu meiri sóló- isti. Svona má lengi halda áfram, enda taka nÝustu plöturnar með hljómsveitinni af nllan vafa. Sport. Um daginn rakst ég á fréttir af 'þróttamóti, sem sænskir hljóðfæraleikarar ^alda með sér árlega. Árangrar voru nokk- uð misjafnir eins og gefur að skilja. Hundr- nð metra hlaupið vannst þó á 11,6 sek., 200 m. á 24 sek. og 400 m. á 54,6 sek. Stökkin og köstin voru lakari. Langstökk 0,59, hástökk 1,45, kúluvarp 10,55 og spjót- 'ð 37,85. Hvernig væri það annars, væri ekki athugandi að íslenzkir hljóðfæraleik- nrar héldu með sér smá-íþróttamót. Það hlaupa kannski ekki allir hundrað metra a 11,6 sek., en fleiri geta þó stokkið 1,45 metra. Önnur stéttarfélög hér halda með ser keppnir, t. d. í knattspyrnu. Hvað segja hljóðfæraleikarar um þetta? Jazz-stjörnur heitir bæklingur, sem gef- 'un var út fyrir nokkrum mánuðum. Hann hefur inni að halda mikinn fróðleik, ásamt uiyndum, um fjöldann allan af þekktum lazzleikurum og er nauðsynlegt heimildar- rit hverjum einasta jazz-áhugamanni. erlent. Plötur. Nýlega eru komnar út í Banda- ríkjunum nokkrar plötur, sem Louis Arm- strong lék á er hann var í París 1934. Þær eru sagðar vera einhverjar beztu plöturnar •neð gamla manninum frá þessum árum. Svend Asmussen, danski fiðluleikarinn kefur leikið með hljómsveit sinni undan- farið í Frakklandi. Trombónleikarinn Peter Pasmussen, sem einnig er danskur hefur aftur á móti verið með sína hljómsveit á ,,National Scaia“ í Kaupmannahöfn. Tutti tutti pizzicato heitir lag, sem trompetleikarinn og hljómsveitarstjórinn Louis Prima hefur samið, það er um þessar Oiundir eitt af allra vinsæiustu lögunum í Pandaríkjunum. Hay McKinley trommuleikari og hljóm- sveitarstjóri og ungur og upprennandi söngvari að nafni Johnny Bradford hafa nýlega gert samning við RCA Victor plötu- fyrirtækið og eru nýlega komnar á mark- aðinn ])lötur með þeim. IHinois Jacquet tenór-sax leikarinn frægi hefur einnig gert samning við RCA. Fyrsta platan með hljómsveit hans er fyrir' stuttu komin út, lögin heita „Riffin at 24. street" og „King Jacquet". í hljómsveitinni eru AI Lucas á bassa, Charles Thompson á píanó, Joe Newman og Russel Jacquet á trompetta, J. J. Johnson á trombón og John Collins á guitar í seinna laginu. lllinois hefur nýlega tryggt. lungun í sér fyrir 100,000 dollara. Miguelito Valdes hinn þekkti rhumba söngvari hefur nýlega stofnað hljómsveit, sem þegar hefur náð miklum vinsældum. Red Callender bassaleikarinn þekkti (hann var einn þeirra fremstu í síðustu Metronome kosningum) er kominn til Hono- lulu og kennir þar á konti’abassa. Beryl Ilavis enska söngkonan, sem syng- ur í U.S.A. (Hún syngur nú ásamt Frank Sinatra á hinu vinsæla útvarpsprógrami „The Hit Parade“) hefur nýlega sungið inn á nokkrar plötur, sem gefnar hafa verið út í albúmi er ber nafnið „Beryl by Candlelight", en það var einmitt nafn út- varpsprógrams þess er Beryl hafði hjá BBC útvarpsstöðinni ensku áður en hún fór til U.S.A. „Civilization" (bongo, bongo, bongo) heit- ir lag, sem mikið gekk í Bandaríkjunum fyrir nokkrum mánuðum. Núna eru enskar hljómsveitir farnar að leika það og þá auð- vitað hver einasti Breti flautandi lagið. Dorsey bræðurnir Jimmy og Tommy léku nýlega með Indinapolis Symfóníu hljóm- sveitinni. Nýlega er komið út plötu-albúm með Tommy Dorsey hljómsveitinni. í því eru lög úr hinni nýju kvikmynd „Song of my heart“. S. G. 13

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.