Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 15

Jazzblaðið - 01.05.1948, Blaðsíða 15
11 r því sem til var og notfæra sér sínar ei£in hugmyndir af fremsta megni og hvoru tveggja heppnaðist yfirnáttúrlega vei- En upp úr stríðinu snérist svo blaðið Vlð. Hinar litlu hljómsveitir, sem haldið höfðu saman allt stríðið, leystust upp og Ur því versnaði jazzinn í Danmörku að mun. Mennirnir vildu sjá sig um og skipta uni stöður og góður maður átti alls staðar mni. Margir hverjir fóru til Svíþjóðar, því þar var miklu hærra kaup en í Danmörku. Helztu músikantar í þessum tveim lönd- um eru trompetleikarinn Thore Erling, sem stjórnar fjórtán manna hljómsveit í Sví- þjóð. Hjá honum eru fyrirtaks menn, svo sem guitarleikarinn Sven Stigber, altó-sax 'eikarinn Ove Rönn, trompetleikarinn Putte Ejörn og Henry Wallin, sem er bezti trommuleikarinn í Svíþjóð. Alice „Babs“ Nilson, söng' með hljóm- sveitinni, en er nýlega hætt, margir muna eflaust eftii- henni úr kvikmyndum, sem sýndar hafa verið hér. Lulle Elboj er einnig með ágæta stóra hljómsveit. Hann leikur sjalfur á saxafón. Rolf Ericsson er hjá honum á trompet, en þá verð ég einnig að minnast á liina tvo trompetleikara hljóm- sveitarinnar, þá Nisse Skog og Anders Swárd, því sem heild eru þeir afar góðir. f Danmörku eru það svo litlu hljómsveit- 'i'nar og var Peter Rasmusen með þá beztu þar öll stríðsárin. Hann er trombónleikari a heimsmælikvarða, fyrir stórkostlegan teknik og undursamlegan tón. Með honum voru á stríðsárunum Egon Esbensen tenór- sux, Poul Hindberg, klarinet, Uffe Baadh, trommur, en þeir eru allir með fremstu mönnum í Danmörku hver á sitt hljófæri. Max Leth á píanó og að lokum Christian Jensen á bassa. Danski fiðluleikarinn Svend Asmusen, sem margir álíta bezta jazz-fiðlu- 'eikarann, sem uppi er, var ekki með hljóm- sveit á þessum árum. Hann var í fanga- húðum í Þýzkalandi í nokkurn tíma og hyrjaði ekki að leika neitt verulega fyrr en stríðinu lauk. En þá stofnaði hann hljómsveit, sem undir eins varð sú bezta 1 Danmörku. Með honum voru píanó leikar- inn Max, sem fór frá Rasmusen, Jörgen Ingeman á guitar, sem er að líkindum bezti guitarleikari Evrópu þó ungur sé og man ég samt eftir Django Reinhard hinum franska. Svend Hauberg leikur einnig á guitar, en eingöngu rhythma, Erik Fred- riksen á trommurnar og Börge Ring á bassann. Þetta er afar skemmtileg hljóm- sveit, og hver einasti maður í henni fyrir- taks „show-man“. Þeir leika allir á fleira en eitt hljóðfæri ef því er að skipta. Trommuleikarinn getur brugðið fyrir sig fiðlunni og bassaleikar- inn er góður á guitar, rhythma-guitar leik- arinn er afar góður á klarinet og píanó- leikarinn engu lakari á vibrafón. Asmund- sen sjálfur kórónar svo allt með því að leika á fiðlu, guitar, píanó, vibrafón, bassa og trommur og svo syngur hann ágætlega og semur lög og útsetur fyrir hljómsveit- ina. Fleiri danska jazzleikara mó nefna, t. d. píanóleikarann Kjeld Bonfils, sem reyndar mikið til er hættur að leika. Hann var með Asmundsen fyrir stríðið. Leo Math- isen er annar danskur píanóleikari. Hann er afar hrifinn af Fats heitnum Waller og líkist honum mjög mikið í leik sínum. Hann er nú með eigin hljómsveit. Guitar- leikarinn Helge Jacobsen er einnig með eigin hljómsveit, en hann er annar fyrir- taks jazz-leikari. Gunnar. JAZZ —HUGLEIÐINGAR Framh. af bls. 7. stundum fengið þær til að lifna við, og gert þær litskrúðugri. Að sjálfsögðu eru hljómsveitir er leika útsettan jazz, eins mismunandi eins og þær eru margar. Þar sem þær eru í miklum meirihluta, þyrfti að útskýra þær og leik þeirra nokkuð nán- ar, en til þess vinnst ekki rúm í þetta skipti, þótt vera megi að svo verði innan skamms, en þangað til verða þegar gefnar útskýringar, þó ófullkomnar séu, að nægja. ^LUii 15

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.