Jazzblaðið - 01.02.1949, Blaðsíða 5

Jazzblaðið - 01.02.1949, Blaðsíða 5
órækt vitni um hversu Hawk hefur staðið Evrópu-mönnum miklu framar. Árið 1939 kom hann aftur heim og stofnaði þá stóra hljómsveit, sem leystist upp eftir hálft ár, en byrjaöi síðan með litla hljómsveit og’ þa;r hefur hann verið með ætíð síðan og hafa jafnan úrvals jazzleikarar leikið með honum. Eg hef skrifað svona mikið um Coleman Hawkins vegna þess, að mér finnst að jazz- unnendum beri skylda til að vita meira um hann heldur en nokkurn annan tenór-saxa- fónleikara. Hann hefur verið og er enn leiðarstjarna óteljandi tenór-saxafónleikara um heim alian. Sá sem þekktastur hefur orðið fyrir að leika „Hawkins stílinn", er Choo Berry, sem reyndar síðar meir tók up]> sjálfstæðan stíl. Meðan þeir Iéku sam- an hjá Fletcher, léku þeiv þó nokkuð inn á plötur og einungis af því að Hawk var með heldur fyllri tón, getur maður þekkt þá að á þessum plötum. Eins og ég sagði, þá átti Choo síðar uieir eftir að fá hinn mikla og fallega tón sinn ásamt mjög persónulegum stíl. Eitt bezta dæmið um leik hans, er platan >,Shufflin’ at Hollywood" með Lionel Hampton „all-star“ hljómsveit. Síðar urðu aðrir til að leika í stíl Hawkins, svo sem Een Webster, sem nú leikur hjá Duke Ellington og er hann á flestum Ellington plötunum. „Just a sittin’ and a rockin“ er ágætt dæmi. En þegar maður talar um Hawkins stílinn, þá getur að heyra í þess- uin þremur, sem ég hefi nefnt ásamt Benny Carter altó-saxafón snillingnum á plötunni „Hot mallets" mcð Hampton. Hinn frægi trompetleikari Dizzy Gillespie leikur á þess- ari plötu ásamt fleiri stjörnum, en þá var hann ekki farinn að leika be-bop, sem von er, þar sem platan er tíu ára gömul. Plata þessi er hreinasta afbragð, leikurinn á henni eins fullkominn og framast verður á kosið. Síðan kom stríðið og með því fjöldinn allur af nýjum stjörnum, og nýjum jazz- stíl. Stjörnurnar eru: Illinois Jacquet, Charlie Ventura, Lester Young’, Vido Musso, Don Byas, Wardell Gray, Lucky Thompson, Gene Ammons, Flip Phillipps, Allan Eager og Bob Cooper, svo þeir helztu séu nefndir, og stíllinn eins og við reyndar vitum, be-bop. Þeir framangreindu eru allir be-bop leikarar af hjarta og sál. Illinois náði frægð í hljómsveit Ham])- tons. Hann er fæddur í Texas og byrjaði að leika 15 ára gamall (nú er hann 26 ára) á trommur og sópran-saxafón. Hjá Hampton byrjaði hann með tenórinn, og leið ekki á löngu þar til hann lék eins og hann hefði fæðst með tenórinn á milli handanna, eða öllu heldur varanna. Hawk- ins, sem heyrði í honurn, taldi hann ein- stakt efni. Síðar lék hann með Cab Calloway og Count Basie og stofnaði að lokum eigin hljómsveit, sem hann enn er með. Mig lang- ar að skjóta því hér inn, að Leo Parker, einhver mesti bariton-saxafónleikari jazz- ins, bi'óðir be-bo]) meistarans Charlie Park-

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.