Jazzblaðið - 01.02.1949, Page 10

Jazzblaðið - 01.02.1949, Page 10
^ ÚR ÝMSUM ÁTTUM ^ Swing high. Agæta Jazzblað. Mi<j langar til aö biÖja Jazzblaðið að lcysa úr j/ví fyrir mig, hvaða menn leika á tenórinn og klarinettið á plötunni „Swing high“ meö Tommy Dorscy hljómsveitinni. Sömuleyðis þætti mér vænt um að sjá í blaðinu mynd af Ellu Fitzgerald, svo að maður geti séð, hvernig sú mannvera lítur ut, sem svo dásamlega syngur, hvort sem þaö er ,,My happiness" eða „Lady be good“. Að endingu vildi ég þakka þetta ágæta blað, einkum þessar greinar: Jazz og ekki jazz', 52. stræti, eftir Hobson; grewvina um bassaleikara; og Hvaö er improviser- ing, eftir P. E. Miller. Virðingaifyllst, Jazzáhugamaður. Svar. Saxafónleikararnir á plötunni eru fimm og heita Fred Stulce, Johnny Mince, Hymic Schertzer, Heinie Beau og- Don Lodice. Sólóistarnir eru að líkindum Mince á klarinettið og Don Lodice á tenórinn. Mynd af Ellu Fitzgerald getum við ekki birt fyr en í næsta blaði. Milton og Kay. Gjöriö svo vel og gefið mér upplýsingar um vibraf ónleikarann Milt Jaclcson og bassaleikarann Ray Brown. Mennirnir, sem leika á V-disc plötunni „Rosetta“, sem nefnd var i síðasta blaði cru /jessir: Charlie Shavers trompet, Tramrny Young trombón, Don Byas tenór- sax, Ernie Caceras klarinet, Bill Clifton píanó, Herb Ellis guitar, Bob Haggart bassi og Specs Powell trommur. Haukur Jónsson. Svar. Milt Jackson er fæddur árið 15)23. Hann nam tónlist á unga aldri og fór að leika opinberlega árið 1942, og þá fyrst með hljómsveitum í fæðingarborg sinni Detroit. Dizzy Gillespie heyrði í honum þar og bauð honum strax stöðu í hljóm- sveit sinni, og þáði Milton það. Hann hef- ur leikið með hljómsveitinni að mestu leiti síðan. Milt, sem er 'eini vibrafónleikarinn, er verulegum tökum hefur náð í be-bop leik á hljóðfæri sitt, er talinn einn fremsti vibrafónleikarinn, sem uppi er. Ray Brown er á tuttugasta og þriðja árinu. Hann lærði fyrst á píanó og tók svo fyrir bassann. Eftir að hann lauk gagn- fræðanámi 1944, lék hann sín hvora átta mánuðina í hljómsveitum þeirra Jimmy Hinsley og Snookum Russel. Þá fór hann til New York og réði Gillespie hann þegar til sín. Ray er giftur hinni frægu söng- konu Ellu Fitzgerald og er hann nú með eigið tríó, sem annast undirleik þar sem Ella kemur fram. Ray Brown er afar góð- ur bassaleikari og vafalaust fremsti be-boi> bassaleikarinn. Útsetjari er hann einnig' mjög góður. Við þökkum svo Hauk fyrir upplýsingarnar um plötuna „Rosetta“. Baker. Gætuö jrið sagt mér eittlivaö um trompetleikarann Kenny Baker, sem leikur lijá Ted Heath. — L. Z. Svar. Kenny Baker trompetstjarnan í hljómsveit Ted Heath í Englandi, er fædd- ur árið 1921. Hann varð þekktur jazzleik- ari í Englandi á stríðsárunum og er nú einn af fremstu jazzleikurum Evrópu. Hann hefur leikið með hljómsveitum Ambrosc, Lew Stone, George Shearing, Buddy Featherstonhaugh, Harry Hayes, George Evans, Squadronaires og nú síðast Ted Heath. Með Featherst lék hann t. d. á plötunni „I wish I were twins“ og með Shearing „Riff up them stairs". Á flest- um plötum Ted Heath leikur hann og er „Dark eyes“ eitt dæmi um snilli hans. Nafnlaust. Ef Jazzblaðið er fært til að svara eftirfarandi spurningum, jtá óska ég 10

x

Jazzblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.