Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 9

Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 9
Jiriðja sætið er tenór æskilegri en altó, þar sem hann hefur áhrifameiri tón og samræmist klarinetinu og trompetinum miklu betur. Á flestum fyrstu plötunum mínum not- aði ég trompet, klarinet og tenór.saxa- fón, þó að hljómsveitin, sem ég var með á „Cafe Society“ og lék inn á plötur, hafi verið klarinet, trompet og annað- hvort tenór eða trombón. En fasta skip- un hljómsveitarinnar var klarinet, trom- pet og trombón ásamt þremur rhythma- hljóðfærum. En þessi skipun, með trom- bón í stað tenórs, álít ég ennþá betri, hvað viðvíkur tónsviði og blæbrigðum. En því verð ég að bæta við, að það eru ekki allir trombónleikarar, sem hafa tón- svið og tón eins og Benny Morton, sem var hjá mér um þetta leyti. Því næst kemur hið mikla vandamál, hvað mikið af músikinni eigi að vera útsett. Fyrst þegar við lékum inn, not- uðum við alls engar nótur. Benny, Roy og Ben (ásamt rhythmanum) léku lögin, sólóar eða þá allir saman, eftir því sem við átti. Allt, sem þeir þörfnuðust, var að vita hvaða lag átti að leika. En ef þú átt ekki kost á mönnum, sem færir eru um að leika saman í reglulegri jam- hljómsveit, þá ættirðu að reyna við ein- faldar þríraddaðar útsetningar, þar sem (rompetinn er með efstu röddina, lagið, klarinetið aðra og tenórinn þriðju. Fikr- aðu þig svo áfram með því að leggja fyrir hljómsveitina „head“-útsetningar með því að gefa þeim einföld riff, þar sem þeir finna vel hljómaskiptingarnar. Hinn sígildi tólf takta blues er lang heppilegasta viðfangsefnið af þessu tagi. Láttu þá endurtaka tveggja takta riff í gegnum heilan „chorus“ með smábreyt. ingum í samræmi við hljómasamsetningu Píanðleikararnir Hazel Scott, Tcddy Wilson og Albert Ammons horfa á meistarann Art Tatum leika. bluesins. Þetta er langauðveldasta leiðin fyrir litlar hljómsveitir til að skapa góð- an jazz. Hver sem er, allt frá Ellington og Armstrong og fram úr, hefur notað hana, og geri ég ráð fyrir að hún verði alltaf sígild. f næsta skipti þegar við lékum inn á plötur hjá Brunswick lékum við „Too hot for words“, „Painting the town red“, „What a night“ og „Sweet Lorraine“. Á þessum plötum bætti ég við einu hljóð- íæri til að fá trompet og þriggja saxa- fóna skipun, svo að ég gæti skrifað full- komnari útsetningar. Útkoman var raun- verulega ekki eins skemmtileg að mín- um dómi. Hafi maður músikanta, sem geta samræmst hvers annars stíl og hafa ekki hugann aðeins bundin við að koma að sem flestum nótum, þegar þeir „jama“ saman, þá fæst miklu betri útkoma, sem verður mýkri og líflegri heldur en nokk- ur útsetning. Síðari árin, þegar ég hef leikið inn á plötur, hef ég reynt að halda Framh. á bls. 21. ^azzl/aéié 9

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.