Jazzblaðið - 01.07.1949, Blaðsíða 16
Hljómsveit sú, sem Svend
Asmussen stofnaði eftir að
stríðinu lauk. Fremri röð:
Jergen Ingeman guitar,
Svend Hauberg rhythma-
guitar og klar., Borge Ring
bassi. Aftari röð: Max
Scith píanó, Svend fiðla og
Erik Fredcrikscn tromma.
Evrópu. Hann var sérstaklega hrifinn
af hinum unga danska fiðluleikara, en
Svend var aðeins tuttugu og tveggja ára
þá. Á stríðsárunum var Svend í fanga-
búðum Þjóðverja um tíma og byrjaði
hann ekki að leika neitt að ráði fyrr en
stríðinu lauk. Hann stofnaði þá hljóm-
sveit með þeim Max Leit á pianó, Jörgen
Ingeman á guitar, Svend Hauberg lék
á rhythma guitar og klarinet, Börge
Ring lék á bassa og Fredriksen á tromm-
ur. Hljómsveitin varð þegar vinsælasta
hljómsveitin í Danmörku, síðan vinsæl-
asta hljómsveit Norðurlanda og senni-
iega nú ein vinsælasta hljómsveit í allri
Evrópu.
Sumarið 1948 bauð hinn ameríski
hljómsveitarstjóri, Benny Goodman,
Svend stöðu í sextet sínum, og er áreiö-
anlegt, að það hefði hann ekki gert án
þess að vita fyrirfram, að Svend væri
snillingur. Goodman hefur ætíð verið
vandlátur með menn til að leika í smá-
hljómsveitum sinum, og þar hafa aldrei
komizt að aðrir en úrvals hljóðfæraleik-
arar.
Svend tók ekki þessu boði Goodmans,
sem marga furðar sennilega á. En ástæð-
an fyrir því var sú, að hann vildi ekki
leysa upp hljómsveit sína til að leika í
Bandaríkjunum. Hljómsveit hans er eins
og áður getur ein vinsælasta og bezta
hljómsveit í Evrópu og sennilega um
leið sú tekjuhæsta. •
S. G.
MAURICE BURMAN, höfundur grein-
arinnar á næstu bls. cr þckktuh enskur
hljóðl'æralcikari, sem undanfarin ár licf-
ur skrifað tónlistargagnrýni á BBC,
brezka útvarpið, í hið kunna enska tón-
Iistarblað MELODY MAKER, scm kemur
út vikulega. Greinin er lítið eitt stytt í
þýðingu.
16 ^azfífaSií