Jazzblaðið - 01.02.1950, Qupperneq 4
JUtur Sínionarion :
ÍSLENZKIR HLJDÐFÆRALEIKARAR
Svavar Gests
Svavar Gests er fæddur í Reykjavík
17. júní 1926. Eftir barnaskólanám
stundaði hann nám m. a. í héraðsskólan-
um að Núpi, en lauk svo gagnfræðanámi
hér í Reykjavík. Á þessum árum byrjar
hugur hans að hneigjast að tónlistinni
og keypti hann sér gullfallegt mandólín,
sem hann átti þó ekki lengi, en seldi það
dýrara en hann keypti og fyrir pening-
ana fékk hann sér grammofón og um leið
sýktist hann af þessari veiki, sem síðan
hefur ekki látið hann í friði, sem sé
„plötusöfnunardellu", og keypti hann sér
allar þær jazzplötur, er hann komst yfir
í verzlunum hér í bæ.
Um líkt leyti byrjar áhugi hans fyrir
trommum, sem fyrst fékk útrás á stól-
um, borðum, diskum, glösum og fleiru,
sem var við hendina í það og það skiptið.
Haustið 1944 kynntist Svavar Kristjáni
Kristjánssyni og lánaði Kristján hon-
um trommusett, sem hann lék á í nokkur
skipti um veturinn á skóladansæfingum
og víðar með þeim Kristjáni, Gunnari
Egils, Axel Kristjánssyni, Róbert Þórð-
arsyni og fleirum, er byrjuðu þá að
leika opinberlega um svipað leyti.
Næsta haust byrjaði hann að leika
ásamt Kristjáni Kristjánssyni, Róbert
og Kristjáni Hanssyni píanóleikara í
samkomusal mjólkurstöðvarinnar og lék
hann þar um veturinn. Um vorið lék
hann um mánaðartíma í Breiðfirðinga-
búð.
Hinn 1. júní 1946 fór Svavar til tón-
listarnáms til Bandaríkjanna, ásamt
Kristjáni Kristjánssyni. Stundaði hann
nám í „Juilliard School of Music“ í
New York um fjórtán mánaða skeið.
Hann lærði aðallega á trommur, en
einnig á xylafón, vibrafón og tympani
(pákur) og var Moris Goldenberg aðal-
kennari hans á öll þessi hljóðfæri. Einn-
ig var hann í aukatímum fram til ára-
móta hjá hinum þekkta trommukennara
Henry Adler.
Á námstímabilinu eyddi Svavar öll-
um frístundum sínum frá æfingum og
námi í að hlusta á jazzleikara, ef ekki í
eigin persónu, þá í útvarpi eða af plöt-
um, og gafst honum kostur á að sjá og
heyra alla beztu jazzhljómlistarmenn
Bandaríkjanna. Yrði of langt mál að
telja þá alla upp hér, en þeir Red Norvo,
Charlie Parker, Dizzy Gillespie og Shelly
Manne eru í mestu uppáhaldi hjá hon-
um. Hvað hljómsveitum viðvíkur er
Ellington alltaf framarlega í flokki
hljómsveita þeirra, er Svavar hefur
mesta ánægju af að hlusta á.
Áhugi Svavars fyrir plötusöfnun var
mikill, meðan hann stundaði námið og
fékk hann margar sjaldgæfar plötur í
New York og bætti við safn sitt, er var
talsvert að vöxtum áður en hann fór út.
Eftir heimkomuna bætti hann enn mikið
við safn sitt og mun nú eiga mesta plötu-
safn hér af jazzplötum, bæði hvað
4 flazzllaM