Jazzblaðið - 01.02.1950, Qupperneq 5
fjölda platna og gæði snertir. Plöturn-
ar munu vera um fimmtán hundruð
talsins og hafa þegar komið að góðum
notum hér í uppfræðslu um jazztónlist-
ina á „plötu-sessionum“ Jazzblaðsins,
fræðslukvöldum Jazzklúbbsins og víðar.
—- Svavar kom heim til íslands í ágúst
1947 og byrjaði í K. K.-
sextettinum, er lék í sam-
komusal mjólkurstöðvar-
innar um veturinn. í jan-
úar 1948 hóf Svavar,
ásamt undirrituðum, út-
gáfu þessa blaðs, sem nú
er að hefja sinn þriðja
árgang. Um vorið leyst-
ist K. K.-sextettinn upp,
og lék þá Svavar hingað
og þangað um sumarið, en
um haustið réðst hann í
hljómsveit Góðtemplai'ahússins og lék
þar í nokkra mánuði, en byrjaði þá í
hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar, í sam-
komusal mjólkurstöðvarinnar, og lék
hann þar á vibrafón og xylófón. — Um
sumarið 1949 lék Svavar á ýmsum stöð-
um, en um haustið byrjaði hann með
sína eigin hljómsveit í Þórscafé, með
þeim Árna ísleifssyni á píanó, Þóri
Jónssyni, fiðla, og Garðari Jóhannes-
syni, harmonika.
Svavar hefur leikið með Lúðrasveit
Reykjavíkur frá því að hann kom heim
frá Bandaríkjunum, og verið í stjórn
hennar síðastliðið ár. Þá hefur hann og
leikið með Symfóníuhljómsveit Reykja-
víkur bæði á xylafón og trommur.
Þó að áhugi Svavars hafi að mestu
beinzt að jazztónlistinni, hefur hann
mikla ánægju af klassískri tónlist og á
nokkur klassísk verk á plötum. Áhugi
hans beinist aðallega að nútíma tón-
skáldum eins og Stravinsky, Hindemith
og fleirum.
í febrúar 1949 var Svavar kosinn
formaður í Félagi íslenzkra hljóðfæra-
leikara og hefur hann gengt því ábyrgð-
arstarfi af miklum dugnaði og trú-
mennsku, eins og hans er
vandi til. Hefur hann
komið breytingum á í fé-
laginu, er hafa orðið mjög
vinsælar, t. d. ráðningar-
skrifstofa félagsins, sem
stöðugt nýtur aukinna
vinsælda til hagræðis fyr-
ir hljóðfæraleikara sem
almenning. Með Svavari
?ar kosin ný stjóm í fé-
lagið, sem hefur undir
forystu hans lagt kapp á
að efla félagsþroska meðlimanna og
vinna upp félagið, en starfsemi þess var
áður mjög í molum.
í hinum nýstofnaða Jazzklúbli íslands,
sem Svavar átti mikinn þátt í að var
stofnaður, var hann kosinn ritari klúbbs-
ins, og mun hann áreiðanlega ekki liggja
á liði sínu þar frekar en annars staðar.
H. S.
Ráðning myndagetraunar
jólablaðsins.
Aðeins ein rétt ráðning barst, og var
hún frá Birgi Sigurðssyni, Njálsgötu
31 A, Reykjavík. Er hann beðinn að vitja
verðlaunanna á afgreiðslu blaðsins. —
Myndii'nar voru af Count Basie, Barney
Bigard, Earl Hines, Johnny Hodges,
Cootie Williams, Red Allen, Billy Stray-
horn, Stan Kenton og Billie Holiday.
UzUaÍiÍ 5