Jazzblaðið - 01.02.1950, Page 7
um heyrt þær? — Og að síðustu, get ég
fengið einhverjar upplýsingar um Har-
ald Guðmundsson, sem lék með Bimi R.
eklci alls fyrir löngu og var stjórnandi
Mandolínhljómsveitar Reykjavíkur, en
er nú búsettur í Vestmannaeyjum. Væri
ekki hægt að birta mynd af honum eða
hljómsveitinni, sem hann hefur í Eyjum.
Það eina, sem ég hef út á Jazzblaðið að
setja er, að það birtir of sjaldan myndir
af jazzleikurum úti á landi og viðtöl
við þá. Með fyrirfram þaklclæti.
Jazzunnandi.
SVAR. Sennilega verður langt að bíða
þar til íslenzkir jazzleikarar fá að láta
til sín heyra í þessum hálftíma í viku,
sem Ríkisútvarpið útvarpar til útlanda,
og væri jafnvel óskandi að fyrst fengju
landsmenn að heyra í sínum eigin jazz-
leikurum oftar en nú gerizt. — Að senda
hljómsveit út, hlýtur að verða fyrr eða
síðar, og er það eitt af áhugamálum
hins nýstofnaða jazzklúbbs, sem rætt er
um á öðrum stað í þessu blaði. — Á bls.
22 í þessu hefti er mynd af hljómsveit
Haraldar ásamt grein, og er það upphaf
kynningargreina um hljómsveitir úti á
landi.
MORTH. Okkur langar að biðja blaðið
að segja okkur hver söng einsöng með
kvartett Björns R. Einarssonar í laginu
„Jingle bells", sem sungið var í útvarp-
inu á annan í jólum og á gamlárskvöld.
Það varð ágreiningur um það milli okk-
ar og langar okkur að fá að vita hið
rétta. Tvær lirifnar.
SVAR. Það var Haukur Morthens.
BLOW. Mér þætti vænt um að fá ein-
hverjar smávegis upplýsingar um tenór-
saxafónleikarann Buddy Tate. Hvað
kosta grammofónplötur í Bandaríkjun-
um? St. Si.
SVAR. Buddy Tate er 36 ára gamall
negri. Hann byrjaði að leika á tenór-
saxafón í gagnfræðaskóla og lék síðan
með nokkrum hljómsveitum í suðurríkj-
um Bandaríkjanna, áður en hann byrj-
aði að leika með hljómsveit Count Basie,
en þar hefur hann verið í nokkur undan-
farin ár. Þó að hann hafi leikið annan
tenór hjá Basie, er hann samt mjög
góður einleikari með svipaðan stíl og
Hawkins. — Algengustu plötur kosta
tæpan dollar eintakið.
RAGTIME. Getið þið gefið mér upp-
lýsingar um altó-saxafónleikarann Char-
lie Parker. Vegna ágreinings langar mig
að spyrja hver sé uppruni jazzins. —
Félagi minn segir, að hann sé uppruna-
lega frá Afrlku, en ég segi að svo sé
ekki. — Hvar er hægt að fá jazzlög og
algeng danslög á nótum?
Með þakklæti. — M. S.
SVAR. Charlie Parker fæddist fyrir
30 árum í Kansas City í Bandaríkjun-
um. Hann byrjaði ungur að leika á hljóð-
færi og lék hann með nokkrum þekktum
hljómsveitum áður en hann byrjaði með
eigfn (litla) hljómsveit 1945. — Charlie
Parker er sagður hafa yfir mestri tækni
að ráða á hljóðfæri sitt af öllum jazz-
leikurum, sem til þekkist, og kemur það
honum að góðum notum við að leika
Be-bop, sem hann er upphafsmaður að.
— Jazzinn var fundinn upp af negrum
í borginni New Orleans í U. S. A. fyrir
ca. 60 árum. Fyrstu lögin, er þeirra tíma
jazzleikarar léku voru allt eins fengin
að Iáni frá hvítum mönnum, en rhythm-
inn í músíkinni var frá negrunum sjálf-
7