Jazzblaðið - 01.02.1950, Qupperneq 14
J4iLar SUjutí,
_
Jazz- klúbbur I slands
Jazzblaðið hefur beðið mig að skrifa
nokkrar línur um hinn nýstofnaða Jazz-
klúbb. Mér er 1 júft að verða við þeirri
bón, því að við, sem honum stöndum,
trúum því að klúbbur sem slíkur, eigi
mikið verkefni fyrir höndum. Ég skal
nú í fáum orðum rekja aðdragandann að
stofnun klúbbsins. í byrjun desember,
boðaði Svavar Gests eftirtalda menn á
fund til þess að ræða stofnun á Jazz-
klúbb. Auk Svavars voru þessir menn
mættir, Róbert Þórðarson, Jón M. Árna-
son, Ólafur Gaukur, Gunnar Ormslev,
Björn R. Einarsson og Hilmar Skag-
field. Gert var uppkast að lögum fyrir
klúbbinn, sem lagt skyldi fyrir stofn-
fund, og var ákveðið að halda hann í
Breiðfirðingbúð, laugardaginn 10. des.
Stofnfundurinn var síðan haldinn á
tilsettum stað og tíma. Voru þar mættir
41 maður. Hilmar Skagfield setti fund-
inn og kvaddi þá Svavar Gests til að
vera fundarstjóra og Hall Símonarson
fundarritara. Lagauppkast klúbbsins
var síðan lesið upp og urðu nokkrar um-
ræður um það. Komu margar breyting-
artillögur fram, en þar sem tími var
frekar naumur var ákveðið að fela stjórn
þeirri, sem kosin yrði, að endursemja
lögin, sem síðan skyldu borin upp á
framhaldsstofnfundi. Var svo gengið til
stjórnarkosningar og hlutu þessir menn
kosningu:
Hilmar Skagfield formaður, Svavar
Gests ritari, Helgi Helgason gjaldkeri,
14
Róbert Þórðarson og Ólafur Gaukur
meðstjórnendur, Jón M. Árnason og
Hallur Símonarson varamenn. Ég mun
nú ekki rekja þetta öllu nánar,
en skal aðeins minnast á framhalds-
stofnfundinn, sem haldinn var í Verzl-
unarmannaheimilinu, og gengu þar 39
manns í klúbbinn, en félagatalan er nú
um 90 manns. Lög klúbbsins voru þarna
endanlega samþykkt og mun Jazzblaðið
birta lögin í einhverju af næstu blöðum.
Á þessum fundi var fyrsta plötu-session-
in haldin, og var Svavar Gests kynnir.
Kynnti hann nokkrar nýjar plötur með
hinum heimsfræga, blinda, enska píanó-
leikara, Georg Shearing, en hann leikur
eingöngu Be-bop, sem kunnugt er. —
Einnig voru nokkrar aðrar plötur kynnt-
ar, til dæmis Stan Hasselgárd o. 11.
Hvað framtíðarverkefnum klúbbsins
viðvíkur, þá væri það eitt efni í heilt
blað, en ég mun því stikla á því stærsta.
Eins og allir vita, er jazz ný listgrein,
sem farið hefifr sigurför um hinn
menntaða heim. Hafa komið fram af-
burða menn á þessu sviði, bæði tónskáld
og hljóðfæraleikarar, og er það eitt
nokkuð merkilegt, þar sem jazzinn á
ekki nema nokkra áratuga þróun á bak
við sig. Yngri kynslóðin hefur tekið hon-
um tveim höndum, og í flestum löndum
hafa verið stofnaðir klúbbar, sem hafa
haft það að markmiði að kynna eðli
hans og tilgang, og síðast en ekki sízt
listgildi. í þessu sambandi er það mjög
J