Jazzblaðið - 01.02.1950, Qupperneq 21
stjórnar lítHli hljómsveit í Miinchen. —
Þar má einnig finna tvær aðrar litlar
Be-bop hljómsveitir. Þeim stjórnar
Christian Schmitz-Steinberg og Max
Greger. — Coleman Hawkins, ameríski
tenór-saxafónleikarinn, hefur nýlega
leikið í París og London. — Sidney
Bechet, annar amerískur (sópran-)saxa-
fónleikari, er seztur að í París, þar sem
hann hefur leikið undanfarið. Fyrir
stuttu lék hann á hljómleikum í London
og Svíþjóð. Á hljómleikum þeim, er
hann lék á í Svíþjóð, léku m. a. tveir
mestu Be-bop altó-saxafónleikarar Ev-
rópu, Svíinn Arne Domnerus og Eng-
lendingurinn Johnny Dankworth. —
Hljómsveitir Englendinganna Harry
Parry og Ray Ellington leika nú í Hol-
landi. — Til Englands kom hljómsveit
Johnny Meyer frá Hollandi. — Amer-
íski söngkvartettinn „The Deep River
Boys" hefur verið í hljómleikaferðalagi
í Englandi undanfarið.
IN N LE N T
★ Björn R. Einarsson varð að hætta að
leika á trombóninn um síðustu áramót,
og mun sennilega ekki geta byrjað aftur
fyrr en eftir ár. Hann er marinn á neðri
vör og tekur svona langan tíma að fá
það í lag. Á meðan leikur Björn á har-
moniku, og auk þess er hann að æfa á
vibrafón, sem hann vonast til að
geta byrjað að leika á með hljómsveit-
inni eftir nokkrar vikur.
Fyrir áramót urðu þær breytingar
hjá Birni.að þeir Ólafur Gaukur guitar-
leikari og Axel bassaleikari hættu í
hljómsveitinni. Gaukur fór tii Steinþórs
í samkomusal mjólkurstöðvarinnar og
Axel fór í samkomuhúsið Röðul.
Auk Björns voru þá eftir fjórir í
hljómsveitinni og réði hann Hauk
Morthens söngvara sem fimmta mann til
vorsins, en býst þá við að bæta við ein-
um eða tveimur mönnum.
★ K. K. sextettinn hætti að leika í Röðli
rétt fyrir jól og byrjaði í Listamanna-
skálanum, þar sem hann er ráðinn fram
til vorsins. í Röðli byrjuðu þeir Jóna-
tan Ólafsson hljómsveitarstjóri og píanó-
leikari, Grettir Björnsson harmonika og
klar., Karl Adólfsson harmonika, klar.
og altó-sax, Axel Kristjánsson bassi og
guitar og Höskuldur Þórhallsson tromm-
ur.
★ Eyþór Þorláksson hætti í hljómsveit
Stefáns Þorleifssonar í Tjarnarcafé í
miðjum janúar og fór til Englands, þar
sem hann mun stunda tónlistarnám.
★ Birgir Muller leikur á trompet með
hljómsveit föður síns Tage Muller í Iðnó
á laugardagskvöldum. Birgir hefur
dvalið talsvert erlendis, og er fróður um
margt, er viðvikur jazzmúsik og jazz-
leikurum. Plötusafn á hann ágætt.
★ Jam-sessionir Jazzblaðsins hafa tvær
verið haldnar eftir áramót og heppnast
vel að vanda. Þeim verður haldið áfram
hálfsmánaðarlega til vorsins. — Eftir
nokkra daga fara hljómleikar fram í
sambandi við kosningar blaðsins um
vinsældir íslenzkra hljóðfæraleikara.
★ Hreðavatnsvalsinn heitir nýtt dans-
lag, sem nýlega hefur borizt blaðinu. —
Það er eftir Reynir Geirs (dulnefni) og
útsett af Carli Billich. Útgáfa lags þess
er hin vandaðasta og sama má segja
um lagið sjálft, og útsetningu þess.
^axxltaíii 21