Jazzblaðið - 01.02.1950, Blaðsíða 23
karlakór og tríó (píanó, fiðla og celló),
er leikur klassik.
Jazzinn hefur átt hér fremur erfitt
uppdráttar, sem hefur verið fyrir þá
sök, að fólk hefur ekki átt þess kost að
hlýða á góðan jazz. Mun eg eftir fremstu
getu og viti kynna fólki jazz hér. Eg
veit að ég fæ hnútur fyrir viðleitni mína
í þá átt, þar sem ég er stjórnandi Vest-
mannakórsins (30 manna blandaður kór)
— en ég mun ekki láta það á mig fá.
Það er svo margt annað en klassíkin,
sem heyrir undir nafnið tónlist og sé
jazzinn vel leikinn, þá er hann engu síðri
en hvað annað.
Einar Bragi virðist vera nokkurn veg-
inn sammála Haraldi í þessu, þar sem
hann segir:
„Að vísu eru þeir æiúð margir, sem
telja munu það algert öfugmæli að tala
um nokkuð merkilegt í sambandi við
jazz, því að hann sé í eðli sínu ómerki-
legur. Þeir eru þó ófáir, sem afskrifa
jazzinn með öllu sem hljómlist og telja
hann alltaf og skilyrðislaust leirbull.
Þetta er hin mesta fjarstæða. Að vísu
getur illa útsett jazzgaul verið viðbjóðs-
legt eins og önnur léleg tónlist, en hitt
er jafnvíst, að sannur impróvíséraður
jazz, leikinn af frumlegum skapandi
listamönnum, er engin andstæða æðri,
klassískrar tónlistar, heldur einn þátt-
ur hennar og þarf ekki að vera sá sízti“.
Þessi ummæli ritstjóra Eyjablaðsins
um jazztónlistina eru mjög athyglisverð
og sannarlega þess verð að festa þau sér
í minni.
Margir kunnir hljómlistarmenn eru
úr Eyjum. Kemur mér þar fyrst í hug
Oddgeir Kristjánsson, hinn ötuli stjórn-
andi Lúðrasveitar Vestmannaeyja, sem
einnig hefur samið mörg fyrirtaks dans-
lög, er því miður hafa ekki verið gefin
út og eru því lítt kunn.
í hljómsveit Aage Lorange hér í
Reykjavík er Jónas Dagbjartsson trom-
petleikari frá Eyjum og í Tjarnarcafé
leikur Guðjón Pálsson á píanó og er
hann einnig úr Eyjum.
Vestmanneyingurinn Haraldur Guð-
mundson er reykvískum jazzunnendum
vel kunnur fyrir leik sinn með hljóm-
sveit Björns R. Einarssonar frá 1946
-—’48. Þá heflur hann og leikið í Lúðra-
sveitinni Svanur og verið stjórnandi
Mandólínhljómsveitar Reykjavíkur.
Haraldur og félagar hans í Eyjum
eiga lof skilið fyrir áhuga þann, er þeir
hafa sýnt við að kynna jazzinn. Beztu
óskir, sem ég gæti fært þeim til handa
fyrir hið ötula starf þeirra, væru áreið-
anlega þær, að hljóðfæraleikarar annars
staðar á landinu fetuðu í fótspor þeirra.
S. G.
HARMONIKUSÍÐAN
verður ekki í þessu hefi, þar sem
ristjóri hennar, Bragi Hlíðberg, er um
þessar mundir í Englandi. — Síðan verð-
ur í næsta hefti og mun Bragi þá m. a.
segja frá enskum harmonikuleikurum.
Hreðavatnsvalsinn
NÝTT danslag
eftir
REYNIR GEIRS
útsett af
CARLI BILLICH
★
Fœst i hljóðfœraverzlunum.
23