Jazzblaðið - 01.11.1950, Page 3
ÚTGEFANDI: SVAVAR GESTS - AFGREIÐSLA RANARÐÖ TU 34 - SlMI 21S7
ÍSAFGLDARPRENTSM IOJ A H. F.
GLENN MILLER--------------------------~
Forsíöa Jazzblaðsins er að ]>essu sinni tileinkuð minningu hins ágœta
hljómsveitarstjóra, Glenn Miller, sem lézt fyrir 6 árum, þegar flugvél, sem
hann var í, týndist á leiðinni frá Englandi til Frakklands. Glenn Miller,
sem var 39 ára gamall, er hann lézt, var einhver vinsælasti hljóðfæraleikari,
sem. Bandaríkin hafa alið. Hann byrjaði ungur að leika á hljóðfæri, 'og
var mjög fljótt farinn að leika með þekktum hljómsveitum. Hann stofnaði
eigin hljómsveit 1933, og varð hún fljótlega ein allra. vinsælasta hljómsveit,
Bandaríkjanna, sem mikið var vegna hinna sérstæðu og fallegu útsetninga
Millers. Pegar þetta er skrifað, sex árum eftir dauða Glenn Miller, eru
Bandnrískar hljómsveitir hver af annarri að taka upp hinn svokallaða
,,Miller-stíl“. Fremstir i flokki þar eru Tex Beneke, sem tólc við stjóm
hljómsveitar þeirrar, sem Glenn Miller var með, þegar hann lézt. — Út-
setjararnir Ralph Flanagan og Jerry Gray eru báðir með hljómsveit í
,,Miller-stílnum“, og sá síðari er með marga. menn úr hljómsveit Millers. —
Glenn Miller hefur ætíð verið mjög vinsæll hér á landi. — Þegar eitthvað
fékkst af plötum, seldvst plötur hans einna mest. — Það eru ekki. einungis
íslenzkir hlustendur, sem kunna að meta hæfileika hans, heldur og jazz-
vinir vm heim allav. — Blessuð sé minning hans.
EFNI:
Forsiðumynd: Glenn Miller.
Harry Gold. Grein um vinsælasta Dixie-
land-hljómsveitarstj. Englands, skrlfuð
fyrlr Jazzblaöið af Ch. H. Long...... bls. 3
Hr ýmsum áttum. Bréf frá lesendum og
svör viö þeim ....................... — 7
Harry Jamcs fæddist í sirkus. Fróðleg
srein um frægan trompetleikara.... — 8
Draxnnur jazzistans. Eftir „C-streng1’.. — 10
Ad Lib. Eftir Svavar Gests ............... — 12
Dansliljómsvcit Borgarness. Eftír Róbert
Þórðarson ............................. — 14
Fréttir og fleira ........................ — 16
Putte Wickman. Viðtal við þennan vin-
sæla sænska hljómsv.stj., eftir Benny
Aoslund, fréttaritara Jazzbl. í Svíþjóð — 18