Jazzblaðið - 01.11.1950, Side 8
HARRY JAMES
Fœddist í Sirkus
Hinn sígildi draumur allra amerískra
drengja er, að strjúka að heiman og
réðast í sirkus, en þannig var það ekki
með Harry James. Hann fæddist nefni-
lega í sirkus. — Hinn heimsfrægi, rúm-
lega þrítugi hljómsveitarstjóri eyddi
fyrstu 15 árum æfi sinnar í sirkusn-
um, og hann er ekki frá því, að láta í
veðri vaka, að sirkus-lífið sé reglulega
skemmtilegt og æsandi.
Tökum daginn, sem hann hafði kom-
ist fram á sýningarsviðið og var að
horfa á móður sína stjórna stórum
hestahóp, leikandi listir. Hann var að-
eins sex ára þá og enginn hafði haft
gætur á honum. Hann hafði ekki hug-
mynd um, að hann stóð nákvæmlega þar,
sem hestarnir áttu að hlaupa út, þegar
þeir höfðu lokið sínu hlutverki. Það
hvein í svipunni og þeir komu hlaup-
andi fram. Uppáhalds hestur móður
hans hljóp fyrst og felldi Harry um koll.
Síðan gerði hesturinn nokkuð, sem bar
vott um miklar gáfur. Hann stóð graf-
kyrr yfir Harry og beið þangað til hin
hrossin höfðu hlaupið fram hjá, og
varnaði þannig, að Harry yrði kraminn
til dauða undir hófum hrossanna.
Harry fæddist í Albany í Georgia, en
„Haag“-sirkusinn sýndi þar um það
Ieiti. Móðir hans hafði leikið listir sínar
fljúgandi um loftið á rólum, og sýnt hin
fífldjörfustu brögð, allt fram að mánuði
áður en Harry fæddist.
Faðir Harrys stjórnaði hljómsveit
sirkusins.
Jafnskjótt og Harry var farinn að
ganga, var 70 ára gamall trúður, sem
hafði mikið dálæti á honum, farinn að
kenna honum kollstökk og hinar og þess-
ar fimleikalistir, og leið ekki á löngu,
unz þeir voru farnir að sýna hjá sirk-
usnum, auglýstir sem „Elzti og yngsti
trúður við sirkus".
Fjögurra ára gamall var Harry með
ljóst hár, sem liðaðist aftur á herðar
í þykkum lokkum. Hann var látinn leika
í skrautsýningu og stillt upp á íburðar-
mikinn pall á miðju sýningarsvæðinu,
sem átti að tákna hásæti. Einn daginn,
þegar hann var að hneigja sig fyrir
lófaklappi áheyrenda, kom annar óvænt-
ari hávaði. Það hafði gleymzt að loka
ljónabúrinu og nú komu ljónin öll æð-
andi inn á sviðið.
Harry, aðeins fjögurra ára, hafði vit
á að sitja grafkyrr, þangað til ljóna-
temjarinn var kominn og hafði rekið
ljónin í búr sín.
Hinir þykku lokkar voru farnir að
gera honum gramt í geði, en hvernig
sem hann reyndi, þá fékk hann móðir
sína ekki til að klippa þá af. Hann
losnaði aftur á móti við þá nokkru síð*
8 Ja,ríMi,