Jazzblaðið - 01.11.1950, Qupperneq 13
fá einhver ítök í, hverskonar hljóðfæri
það eru, sem flutt eru inn (það eru
nefnilega allir komnir á þá skoðun, að
það sé þegar orðið nóg um munnhörpur
i landinu).
Það er leitt til þess að vita, að enginn
skyldi hafa árætt að skrifa grein, því
að blaðið er enn á þeirri skoðun, að
margir jazzáhugamenn og jazzleikara
hér á landi geta tekið sér penna í hönd
og skrifað góðar greinar, en ef til vill
eru menn ekki fyrir það, að taka þátt í
keppni um slíkt, enda var fresturinn
ekki útrunninn, fyrr en giæin (eða öllu
heldur smásaga) barst blaðinu, og vill
höfundur hennar (því miður) ekki láta
nafns síns getið. En hann þarf ekkert
að skammast sin, því að grein hans er
hin prýðilegasta eins og lesendur geta
best dæmt um sjálfir með þvi að lesa
„Draum jazzins" á bls. 10.
Nýjar hLjómsveitir.
I auglýsingum um dansleiki hefur
maður séð eftirfarandi: Hljómsveit
Magnúsar Randrup leikur, eða: Hljóm-
sveit Þórarins Óskarssonar leikur. —
Hljómsveit Magnúsar leikur í Samkomu-
sal Mjólkurstöðvarinnar og er skipuð
sömu mönnum og síðastliðinn vestur,
minus Gaukur á guitar. Rútur Hannes-
son, sem er Hafnfirðingur eins og Rand-
rup, leikur á píanó, en það gerði Stein-
þór Steingrímsson síðastliðinn vetur og
var um leið hljómsveitarstjóri. Þórar-
inn Óskarsson, ungur trombónleikari,
stjórnar nýrri hljómsveit í Listamanna-
skálanum. Með honum eru Árni ísleifs,
píanó; Bragi Einarsson klarinet og
tenórsaxófónn, Sigurgeir Björgvinsson,
ti'ommur og harmonika, og Karl Lillien-
dahl guitar. Hljómsveit þessa skortir
enn mikið á að vera samkeppnisfær við
aðrar hljómsveitir bæjarins, en hún
mun auðvitað bæta sig, er fram líða
stundir.
Litlar breytingar hafa orðið í öðr-
um hljómsveitum. Þorkell Jóhannesson
leikur á trompet með Iðnó-hljómsveit-
inni á laugardögum í stað Birgis Möller,
sem er nýlega farinn til USA. Pétur
Urbanchie byrjaði fyrir nokkrum vikum
á bassa hjá Jan Morávek í stað Jóns
Sigurðsson, sem fór til Baldurs Krist-
jánssonar i Tívoli, en þegar þetta er
ritað, er lokað þar og hljómsveitin at-
vinnulaus, og svo er reyndar um fleiri
hljóðfæraleikara. — F. í. H. ætti hið
fyrsta að gera einhverjar ráðstafanir
varðandi fyrirsjáanlegan atvinnuskort
hjá stéttinni.
DRAUMUR JAZZISTANS
Framliald af bls. 11.
í dauðans ofboði áður en ríkisútvarp-
inu hefur alveg tekizt að klúfja á mér
hausinn.
En hve þetta getur verið andstyggi-
legur morgun....ég kíki með hálfum
huga milli rúllugardínunnar og glugga-
karmsins og það fer hrollur um mig. . . .
meira að segja dagsbirtan er ekki eins
og hún á að sér. . . .úff, gul og græn.
Ég hef ekki nokkra matarlyst og læð-
ist því beint út, án þess að láta nokk-
urn vita, strax og ég hef lokið við að
hnýta botnlausa Gefjunarskóna á kalda
fæturna. Og ég held í hugsunarleysi
niður á bar....það er víst ekki annað
að gera.... hver veit nema svo ein-
kennilega vilji til að einhver láni mér
fyrir molakaffi. ... C-strengur.
*
#a~LtaíiÍ 13